Dagur og Kristrún halda að sér spilunum

Logi Einarsson telur aðra geta gert betur en hann sem formaður Samfylkingarinnar. Líklegustu arftakar Loga, Dagur B. Eggertsson og Kristrún Frostadóttir, hafa þakkað Loga fyrir störf hans en hvorugt þeirra tjáð sig um framhaldið.

Collage Maker-19-Jun-2022-02.04-PM.jpg
Auglýsing

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, til­kynnti um fyr­ir­hugað brott­hvarf sitt úr for­manns­stólnum í við­tali við Frétta­blaðið í gær. Fjöl­margir hafa brugð­ist við til­kynn­ingu Loga, einkum úr röðum sam­flokks­fólks hans sem hefur þakkað honum góð störf sem for­maður flokks­ins og margir óska þess að hann hverfi þó ekki alfarið úr stjórn­mál­um.

Í við­tal­inu sagð­ist Logi vera að axla ábyrgð á slæ­legu gengi flokks­ins í síð­ustu þing­kosn­ing­um. Hann væri sann­færður um að aðrir gætu gert betur en hann. Þá liggur ljóst fyrir að formans­skipti verða innan Sam­fylk­ing­ar­innar í haust, en þar þykja þau Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og Kristrún Frosta­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, lík­leg­ust til að verða arf­takar Loga. Bæði hafa þau tjáð sig um til­kynn­ingu Loga með færslu á Face­book, en hvor­ugt þeirra gefur nokkuð upp um áform sín, hvort heldur af eða á, er varðar fram­hald­ið.

Lík­leg­ast er að stjórn­mála­menn­irnir tveir ráði nú ráðum sínum er varðar fram­hald­ið, en hvor­ugt þeirra hefur veitt fjöl­miðlum við­tal síðan Logi til­kynnti um að arf­taki hans yrði val­inn í haust.

Auglýsing
Dagur hefur verið einn far­sæl­asti stjórn­mála­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og setið í borg­ar­stjórn í Reykja­vík í 20 ár og verið borg­ar­stjóri í 8, en borg­ar­stjóra­tíð hans er senn á enda þegar Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík og sam­starfs­maður Dags í nýjum meiri­hluta borg­ar­stjórnar í kjöl­far sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna sem fram fóru í maí, tekur við sæt­inu.

Kristrún er hins vegar nýliði í póli­tík og gekk í Sam­fylk­ing­una árið 2020 en vakti mikla athygli fyrir sterka fram­komu er hún leiddi lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður í Alþing­is­kosn­ing­unum á síð­asta ári. Ljóst er að Kristrún hefur nokkurn með­byr innan flokks­ins en ekki liggur fyrir hvort hún sé strax farin að eygja for­manns­stól­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent