Áhyggjuefni að íslensk yfirvöld dragi lappirnar í Samherjamálinu

Yfirmaður vinnuhóps OECD gegn mútum segir það með ólíkindum að lögregluyfirvöld á Íslandi hafi spilað með Samherja og boðað blaðamenn í yfirheyrslur með réttarstöðu sakborninga.

Kos segir yfirvöld í Namibíu draga vagninn í rannsókn á Samherjamálinu.
Kos segir yfirvöld í Namibíu draga vagninn í rannsókn á Samherjamálinu.
Auglýsing

Drago Kos, yfir­maður vinnu­hóps OECD gegn mút­um, segir ótrú­legt að horfa á íslensk stjórn­völd draga lapp­irnar í tengslum við rann­sókn á mútu­greiðslum Sam­herja í Namib­íu. Stjórn­völd í Namibíu dragi vagn­inn í mál­inu og það sé nán­ast vand­ræða­legt fyrir Ísland.

Í við­tali við frétta­stofu Stöðvar 2 og Vísis sagði Kos það jafn­framt valda áhyggjum að íslenskir rann­sókn­ar­blaða­menn hafi verið boð­aðir í yfir­heyrslur af hálfu lög­reglu með rétt­ar­stöðu grun­aðra. Vinnu­hóp­ur­inn líti á blaða­menn sem banda­menn í bar­átt­unni gegn spill­ingu og raunar ótrú­legt að eitt­hvað þessu líkt hafi átt sér stað á Íslandi, að lög­reglan hafi farið á eftir blaða­mönnum í stað þeirra grun­uðu. Eðli­legt sé að fyr­ir­tæki sem liggi undir grun reyni að beina athygl­inni ann­að, en að með ólík­indum sé að lög­reglu­yf­ir­völd spili með.

Vegna þessa, sem og vegna þess að tvö og hálft ár eru liðin frá afhjúpun Sam­herj­a­skjal­anna án þess að nokkuð hafi komið fram af hálfu íslenskra yfir­valda um fram­gang rann­sókn­ar­inn­ar, hyggst vinnu­hóp­ur­inn óska eftir svörum frá íslenskum yfir­völd­um.

Auglýsing

Við umfjöllun Stöðvar 2 var upp­lýs­inga óskað um rann­sókn­ina frá Hér­aðs­sak­sókn­ara, sem sagði málið vinn­ast ágæt­lega þrátt fyrir skort á fjár­magni, og sagði Kos það ótrú­legt að emb­ætti sak­sókn­ara í vel­meg­un­ar­landi eins og Íslandi væri van­fjár­magn­að. „Stjórn­völd verða að finna fjár­magn og veita emb­ætt­inu allt sem það þarf til að klára málið eins fljótt og hægt er.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent