Útgáfuhúsið Verðandi, sem er í eigu Daggar Hjaltalín, hefur yfir tekið yfir rekstur Bókaútgáfunnar Sölku. Verðandi tekur við rekstrinum af Hildi Hermóðsdóttur, sem stofnaði útgáfuna árið 2000. Bókaútgáfan Salka hefur gefið út tugi titla á undanförnum árum og ráðgert er að gefa út fjórar nýjar bækur fyrir komandi jól. Útgáfuhúsið Verðandi kemur til með að gefa út bækur undir eigin nafni og nafni Bókaútgáfunnar Sölku. Þetta kemur fram í tilkynningu vegna eigendaskiptanna.
Þar er haft eftir Dögg að Bókaútgáfan Salka hafi gefið út margar skemmtilegar og góðar bækur sem sönn ánægja sé að halda áfram að selja. "Einnig er útgáfa spennandi bóka framundan og ég hlakka til að fylgja þeim bókum úr hlaði.“
Hildur segist ánægð með að ung kona taki við rekstri Sölku. "Það var markmiðið með stofnun útgáfunnar á sínum tíma að leggja áherslu á útgáfu bóka fyrir og eftir konur og mér sýnist að Dögg muni halda áfram á sömu braut.“
Bókaútgáfan verður til húsa á Suðurlandsbraut 4 og verður opið daglega þar frá 1. október.
Stærstur hluti titla Sölku eru handbækur af ýmsu tagi.