Dómsmálaráðherra beiti agaviðurlögum vegna ummæla vararíkissaksóknara

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir óboðlegt að handhafar valds láti hatursfull ummæli falla, og það ítrekað, og kallar eftir því að dómsmálaráðherra beiti agaviðurlögum gegn Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara.

Í færslu á Facebook segir Þorgerður að í krafti stjórnunar- og eftirlitsheimilda sinna geti dómsmálaráðherra kallað eftir því að agaviðurlögum verði beitt.
Í færslu á Facebook segir Þorgerður að í krafti stjórnunar- og eftirlitsheimilda sinna geti dómsmálaráðherra kallað eftir því að agaviðurlögum verði beitt.
Auglýsing

Ummæli Helga Magn­úsar Gunn­ars­sonar vara­rík­is­sak­sókn­ara um hinsegin hæl­is­leit­endur hafa vakið óhug hjá mörg­um, en í tengslum við umfjöllun Vísis um að kyn­hneigð hinsegin hæl­is­leit­enda sé ítrekað dregin í efa sagði Helgi Magnús hæl­is­leit­endur „auð­vitað ljúga“ og spurði hvort ekki væri þegar nóg af hommum á Íslandi.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur gagn­rýnt ummælin en vísað á rík­is­sak­sókn­ara er varðar ábyrgð í mál­inu og hefur Sig­ríður Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari stað­fest að málið sé til skoð­unar hjá emb­ætt­inu.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir þing­maður er hins vegar ekki sam­mála því að það sé ekki undir dóms­mála­ráð­herra komið að ákveða hvort til­efni sé til þess að áminna Helga Magnús vegna ummæl­anna. Í færslu á Face­book segir Þor­gerður að í krafti stjórn­un­ar- og eft­ir­lits­heim­ilda sinna geti dóms­mála­ráð­herra kallað eftir því að aga­við­ur­lögum verði beitt.

Auglýsing
Í færsl­unni segir Þor­gerður að með ummælum sínum sendi Helgi Magnús mjög hættu­leg skila­boð út til sam­fé­lags­ins. Orð­ræðan hafi félags­mót­andi áhrif og að hat­urs­full orð geti valdið miklum skaða, sem við séum oft minnt á og nú síð­ast þegar skotárás var gerð á sam­komu­stað sam­kyn­hneigðra í Osló í síð­asta mán­uði. Þá séu ummæli sem þessi sér­stak­lega alvar­leg þegar þau komi frá hand­hafa ákæru­valds­ins.

„Um er að ræða einn æðsta emb­ætt­is­mann rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins. Hann hefur fullan rétt til þátt­töku í sam­fé­lags­um­ræð­unni. En völdum fylgir ábyrgð og siða­regl­urnar sem ná til starfs­ins eru skýr­ar. Ákærendur þurfa sér­stak­lega að gæta þess að hlut­leysi þeirra sem ákærendur verði ekki dregið í efa. Það á ekki síður við um fram­göngu utan starfs,“ skrifar Þor­gerð­ur.

Ekki í fyrsta sinn

Þá sé ekki um að ræða fyrsta skiptið sem vara­rík­is­sak­sókn­ar­inn láti út úr sér óvið­eig­andi eða bein­línis hat­urs­full ummæli, hvort sem þau hafi snúið að brota­þol­um, hinsegin fólki, hæl­is­leit­endum eða kven­fólki almennt. Skemmst er að minn­ast þess þegar Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, gagn­rýndi fram­för Helga Magn­úsar á sam­fé­lags­miðlum í kjöl­far þess að hann setti „li­ke“ við færslu Sig­urðar G. Guð­munds­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns þar sem hann birti brot úr skýrslu­töku lög­reglu af Þór­hildi Gyðu Arn­ar­dótt­ur, þol­anda í ofbeld­is­máli, og bar saman við færslu Þór­hildar á Twitter í þeim til­gangi að draga úr trú­verð­ug­leika henn­ar.

­Segir Þor­gerður Helga Magnús til dæmis hafa líkt þung­un­ar­rofi við morð og gert lítið úr rétti kvenna og setur hún það í sam­hengi við nýlegar skerð­ingar á sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti kvenna í Banda­ríkj­un­um.

„Þegar æðstu emb­ætt­is­menn fara fram með þessum hætti grefur það undan kerf­inu sjálfu og trausti okkar til þess. Í siða­reglum ákærenda er lögð áhersla á að þátt­taka þeirra í opin­berri umræðu verði ekki til þess að rýra traust og trú almenn­ings á hlut­leysi ákæru­valds­ins.“

Þess má geta að Helgi Magnús hefur tekið ummælin úr birt­ingu og virð­ist gera til­raun til þess að lýsa yfir stuðn­ingi við hinsegin sam­fé­lagið með því að setja regn­boga „filt­er“ á prófíl­mynd sína á Face­book.

Vara­rík­is­sak­sókn­ari vænir hinsegin hæl­is­leit­endur um lygar og segir þá koma til lands­ins á ann­ar­legum for­send­um. Hann...

Posted by Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir on Sunday, July 24, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent