Dregur úr atvinnuleysi á landinu öllu

Atvinnuleysi á Íslandi helst áfram að dragast saman og mælist nú 3,9 prósent. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi muni dragast enn frekar saman í júní.

Á höfuðborgarsvæðinu mælist atvinnuleysi 4,2 prósent samanborið við 3,4 prósent á landsbyggðinni.
Á höfuðborgarsvæðinu mælist atvinnuleysi 4,2 prósent samanborið við 3,4 prósent á landsbyggðinni.
Auglýsing

Skráð atvinnu­leysi var 3,9 pró­sent í maí og lækkar um 0,6 pró­sentu­stig frá fyrri mán­uði. Að með­al­tali voru 7.717 atvinnu­lausir í mán­uð­in­um, 4.233 karlar og 3.484 konur og fækkar atvinnu­lausum að með­al­tali um 812 frá því í apr­íl. Atvinnu­leysi hefur dreg­ist tölu­vert saman frá því í fyrra, almennt atvinnu­leysi var skráð 9,1 pró­sent í maí 2021. Til við­bótar mæld­ist 0,9 pró­sent atvinnu­leysi vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls í þeim mán­uði svo heild­ar­at­vinnu­leysi í maí í fyrra var tíu pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um vinnu­mark­að­inn á Íslandi.

Í mán­að­ar­skýrsl­unni segir að alls staðar á land­inu hafi dregið úr atvinnu­leysi í mán­uð­in­um, hlut­falls­lega mest á Norð­ur­landi vestra og á Vest­fjörð­um. Þar mælist nú minnst atvinnu­leysi eða 1,2 pró­sent á Norð­ur­landi vestra og 1,9 pró­sent á Vest­fjörðum en hlut­fallið er það sama á Vest­ur­landi.

Auglýsing

Mest er atvinnu­leysið aftur á móti á Suð­ur­nesjum og hefur verið í þónokkurn tíma. Þar mælist atvinnu­leysi nú 6,6 pró­sent en það lækkar um eitt pró­sentu­stig á milli mán­aða. Næst mest er atvinnu­leysið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 4,2 pró­sent og lækkar um hálft pró­sentu­stig á milli mán­aða.

Svona hefur atvinnuleysi á Íslandi þróast síðastliðin tvö ár. Mynd: Vinnumálastofnun

Í skýrsl­unni segir að atvinnu­leysi hafi minnkað meira á lands­byggð­inni sem heild en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, um 0,6 pró­sentu­stig. Atvinnu­leysi á lands­byggð­inni sem heild mælist 3,4 pró­sent.

Vinnu­mála­stofnun gerir ráð fyrir því að atvinnu­leysi muni minnka í júní og vera á bil­inu 3,5 til 3,8 pró­sent. Árs­tíða­sveiflur á vinnu­mark­aði gera það að verkum að alla jafna mælist minna atvinnu­leysi á Íslandi á sumrin en á vetr­um.

Veru­lega hefur dregið úr lang­tíma­at­vinnu­leysi

Við lok síð­asta mán­aðar höfðu 2.713 verið án atvinnu í meira en tólf mán­uði, sam­an­borið við 6.430 í lok maí í fyrra. Fjöldi þeirra sem hefur verið atvinnu­laus í sex til tólf mán­uði fækkar um 77 á milli mán­aða og telur sá hópur nú 1.722 manns. Á sama tíma í fyrra höfðu 6.089 verið atvinnu­laus í sex til tólf mán­uði.

Fjöldi erlendra rík­is­borg­ara án atvinnu í lok maí var 3.331 og fækkar um 526 frá fyrri mán­uði. Það þýðir að meðal erlendra rík­is­borg­ara mælist nú um 8,5 pró­sent atvinnu­leysi. Hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara á atvinnu­leys­is­skrá er nú 43 pró­sent en það var um 40 pró­sent sum­arið 2021.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent