Dýrar auglýsingar en fáir fylgjendur hjá Flokki fólksins og Samfylkingunni

Rúmur helmingur alls auglýsingakostnaðar stjórnmálaflokkanna á Facebook og Instagram hefur annað hvort komið frá Samfylkingunni eða Flokki fólksins síðasta árið. Þrátt fyrir það hafa báðir flokkarnir fáa fylgjendur á miðlunum ef miðað er við aðra flokka.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar
Auglýsing

Alls vörðu Flokkur fólks­ins og Sam­fylk­ingin sam­an­lagt tæpum sjö millj­ónum króna í aug­lýs­ingum á Face­book og Instagram á síð­ustu þrettán mán­uð­um. Þetta er meira en sam­an­lagður aug­lýs­inga­kostn­aður allra hinna stjórn­mála­flokk­anna sem mæl­ast inni á þingi sam­kvæmt skoð­ana­könn­un­um. Þetta kemur fram í sam­an­tekt aug­lýs­inga­stof­unnar Sahara um flokk­ana á sam­fé­lags­miðl­um, sem birt var fyrr í dag.

Sam­kvæmt sam­an­tekt­inni nam aug­lýs­inga­kostn­aður allra flokk­anna sam­tals 11,9 millj­ónum króna á tíma­bil­inu 4. ágúst 2020 til 27. ágúst 2021. Þar varði Flokkur fólks­ins um þriðj­ungi af þeirri upp­hæð, eða 3,9 millj­ónum króna. Næst á eftir kemur Sam­fylk­ing­in, sem varði 2,9 millj­ónum króna í aug­lýs­ingar á miðl­un­um.

Í þriðja sæti kemur svo Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem borg­aði 1,8 milljón króna í aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðl­unum á tíma­bil­inu, en aug­lýs­inga­kostn­aður allra hinna stjórn­mála­flokk­anna var undir einni millj­ón.

Auglýsing

Sahara tók einnig saman fylgj­endur flokk­anna á Instagram og Face­book. Þar er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í fyrsta sæti, en hann er með 15.534 fylgj­endur á Face­book og 3.888 fylgj­endur á Instagram. Ef litið er á sam­an­lagðan fjölda fylgj­enda á báðum miðl­unum eru Píratar og Við­reisn næst­vin­sæl­ustu flokk­arn­ir, en þeir eru báðir með yfir 10 þús­und fylgj­end­ur. Hvorki Flokkur fólks­ins né Sam­fylk­ingin eru á meðal fimm vin­sæl­ustu flokk­anna á miðl­un­um, líkt og sjá má á mynd hér að neð­an.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Sahara

Kjarn­inn hefur áður greint frá aug­lýs­inga­kostn­aði flokk­anna á Face­book í sum­ar, en þar voru Flokkur fólks­ins og Sam­fylk­ingin einnig mest áber­andi. Frá miðjum maí og fram í miðjan ágúst­mánuð keypti Flokkur fólks­ins alls aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðl­inum fyrir um 1,1 milljón króna, en aug­lýs­inga­kostn­aður Sam­fylk­ing­ar­innar var rétt undir einni milljón króna á sama tíma.

Aths. rit­sjórnar 31. ágúst kl. 16:34: Í upp­haf­legu útgáfu frétt­ar­innar var vitnað í Sahara um að töl­urnar næðu til aug­lýs­inga­kostn­aðar á tíma­bil­inu 4. ágúst 2021 til 27. ágúst 2021. Hið rétta er að tíma­bilið sem mælt var náði frá 4. ágúst 2020. Sahara hefur nú upp­fært þessar upp­lýs­ingar og hefur frétt­inni verið breytt í sam­ræmi við það.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent