„Eðlilegt að draga þá ályktun að verðið hafi hækkað vegna áhuga á útboðinu“

Forsætisráðherra segir að það bíði næstu ríkisstjórnar að ákveða hvort selja eigi fleiri hluti í Íslandsbanka. Salan hafi verið vel heppnuð aðgerð.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir sölu rík­is­ins á hlutum í Íslands­banka vel heppn­aða aðgerð vegna þess hverju dreift eign­ar­haldið sé og hversu mik­ill áhug­inn hafi ver­ið. „Við sjáum fjöl­breyttan hóp fólks sem tekur þátt í þessu.“

Þetta kom fram í við­tali við ráð­herr­ann í Spegl­inum á Rás 1 í dag.

Kjarn­inn greindi frá því í morgun birtur hefði verið listi yfir stærstu hlut­hafa Íslands­banka eftir hluta­fjár­út­boð þar sem íslenska ríkið seldi 35 pró­sent eign­ar­hlut í bank­anum fyrir 55,3 millj­arða króna.

Auglýsing

Á list­anum kemur fram að þeir 20 fjár­festar sem keyptu mest í útboð­inu eiga sam­tals 18 pró­sent hlut í bank­an­um. Það þýðir að hinir þátt­tak­end­urnir í útboð­inu, en þeir alls voru um 24 þús­und tals­ins, keyptu sam­an­lagt 17 pró­sent hlut.

Bréfin lágt verð­lögð

Níföld eft­ir­spurn var eftir bréfum í Íslands­banka í hluta­fjár­út­boði bank­ans sem lauk í síð­ustu viku. Allir grein­endur voru sam­mála um að bréfin væru lágt verð­lögð, sér­stak­lega í sam­an­burði við gengi bréfa í Arion banka, hinum kerf­is­lega mik­il­væga bank­anum sem skráður er á mark­að. Það ýtti undir mikla þátt­töku í útboð­inu.

Þegar bréfin voru tekin til við­skipta í gær hækk­uðu þau strax um 20 pró­sent. Það þýðir að sá sem keypti fyrir eina milljón króna var strax búinn að hagn­ast um 200 þús­und krón­ur.

Leggja áherslu á að Lands­bank­inn sé í eigu rík­is­ins

Katrín segir í Spegl­inum eðli­legt að draga þá ályktun að verðið hafi hækkað vegna áhuga á útboð­inu. En hvers vegna var Íslands­banki met­inn lægra en Arion banki? „Það er nú kannski meðal ann­ars vegna þess að arð­semi þess­ara tveggja banka er tölu­vert ólík og arð­semi Íslands­banka hefur verið metin minni meðan arð­semi Arion banka hefur verið yfir þessu. Þannig að ef við til að mynda horfum á þann mæli­kvarða þá eru þessir tveir bankar í raun og veru kannski ekk­ert svo langt frá hvor frá öðrum í verði ef við bara skoðum mun­inn á arð­sem­inn­i.“

Þegar Katrín er spurð hvort hún vilji selja fleiri hluti í bank­anum segir hún að sú ákvörðun bíði næstu rík­is­stjórn­ar. „Ef ég horfi á þá stefnu sem Vinstri hreyf­ingin grænt fram­boð hefur haft þá hefur hún verið mjög skýr. Við höfum lagt á það áherslu að Lands­bank­inn sé í eigu rík­is­ins og þess vegna höfum við staðið með söl­unni núna á hlutnum í Íslands­banka. En þetta er að sjálf­sögðu eitt­hvað sem þarf að ræð­ast síðan í næstu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­u­m.“

Katrín segir að mark­miðið með söl­unni á Íslands­banka hafi verið að draga úr eign­ar­haldi rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum og úr áhætt­unni við að eiga svona stóran hlut í fjár­mála­kerf­inu. „En það breytir því ekki að ríkið á áfram 65 pró­senta hlut í Íslands­banka sem hefur núna hækkað í verði og í raun og veru aukið verð­gildi sitt eftir þessa sölu. Þannig að ég tel í raun og veru fyrst og fremst þetta vera vel heppn­aða aðgerð vegna þess hverju dreift eign­ar­haldið er, hversu mik­ill áhug­inn er og við sjáum fjöl­breyttan hóp fólks sem tekur þátt í þessu,“ segir hún.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent