Efnahagslegar áhyggjur vegna faraldursins aldrei meiri en ótti við að smitast minnkar

Efnahagslegar áhyggjur vegna áhrifa COVID-19 hafa aldrei verið meiri og færri treysta ríkisstjórninni til að takast á við efnahagsleg áhrif faraldursins. Á sama tíma óttast færri að smitast af veirunni.

Efnahagslegar áhyggjur vegna COVID-19 hafa aldrei verið meiri samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup.
Efnahagslegar áhyggjur vegna COVID-19 hafa aldrei verið meiri samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup.
Auglýsing

Dag­leg smit af völdum COVID-19 smita hafa skipt hund­ruðum frá því í des­em­ber en samt sem áður ótt­ast færri að smit­ast af veirunni. Á sama tíma fjölgar þeim sem telja almanna­varnir og heil­brigð­is­yf­ir­völd vera að gera of mikið til að bregð­ast við far­aldr­in­um. Áhyggjur vegna efna­hags­legra áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hafa aldrei mælst meiri og þeim fækkar sem treysta rík­is­stjórn­inni til að takast á við efna­hags­leg áhrif far­ald­urs­ins sam­kvæmt nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Gallup hefur í gegnum far­ald­­ur­inn safnað gögnum um við­horf og líðan Íslend­inga vegna veiru­far­ald­­ur­s­ins með reglu­­legum net­könn­un­um, sem sendar eru út til ein­stak­l­inga 18 ára og eldri sem eru í svoköll­uðum við­horfa­hópi fyr­ir­tæk­is­ins.

Auglýsing
Nýjasta mæl­ingin var gerð var dag­ana 14. - 27. jan­ú­ar, áður en aflétt­ing­ar­á­ætlun stjórn­valda var kynnt. Sam­kvæmt henni minnkar hlut­fall þeirra sem ótt­ast frekar mikið að smit­ast af COVID-19 úr 24 pró­sentum í 19 pró­sent, sam­an­borið við síð­ustu mæl­ingu sem gerð var í lok des­em­ber. Hlut­fall þeirra sem ótt­ast mjög mikið að smit­ast stendur í stað og er áfram fimm pró­sent. Þá hefur þeim sem ótt­ast frekar lítið eða mjög lítið fjölgað úr 36 pró­sentum í 43 pró­sent. Fólk 60 ára eða eldri ótt­ast mest að smitast, eða 29 pró­sent, en fólk yngra en 30 ára ótt­ast minnst að smitast, eða 51 pró­sent.

56 pró­sent hafa mjög miklar eða frekar miklar áhyggjur af efna­hags­legum áhrifum COVID-19

16 pró­sent hafa mjög miklar áhyggjur af efna­hags­legum áhrifum far­ald­ur­ins og hafa aldrei verið fleiri. 40 pró­sent hafa frekar miklar áhyggj­ur. Hlut­fallið mæld­ist lægst í júlí í fyrra þegar aðeins fimm pró­sent höfðu mjög miklar áhyggjur af efna­hags­legum áhrifum far­ald­urs­ins og 32 pró­sent frekar mikl­ar.

Hlut­fall þeirra sem telja rík­is­stjórn­ina gera of lítið til að bregð­ast við nei­kvæðum efna­hags­legum áhrifum tengdum far­aldr­inum hefur sömu­leiðis aldrei verið hærra eða 45 pró­sent. Sam­kvæmt mæl­ing­unni telja 17 pró­sent rík­is­stjórn­ina gera allt of lítið og 28 pró­sent aðeins of lít­ið. 44 pró­sent telja hana gera hæfi­lega mik­ið, átta pró­sent aðeins of mikið og þrjú pró­sent allt of mik­ið.

Færri treysta rík­is­stjórn­inni til að takast á við vand­ann

Þá fækkar þeim sem treysta rík­is­stjórn­inni til að takast á við efna­hags­leg áhrif far­ald­urs­ins. Tíu pró­sent svar­enda treysta rík­is­stjórn­inni full­kom­lega til að takast á við efna­hags­leg áhrif COVID-19 og 16 pró­sent mjög vel, heldur lægra en í síð­ustu mæl­ingu þegar 11 pró­sent treystu rík­is­stjórn­inni full­kom­lega en 21 pró­sent mjög vel. 13 pró­sent treysta rík­is­stjórn­inni frekar illa, níu pró­sent mjög illa og fjögur pró­sent alls ekki. Sam­kvæmt mæl­ing­unni eru því 26 pró­sent sem treysta rík­is­stjórn­inni frekar illa, mjög illa eða alls ekki til að takast á við efna­hags­leg áhrif COVID-19 og hefur aldrei mælst hærra.

Traustið fer minnk­andi eftir því sem fólk er yngra. Þannig treysta 69 pró­sent, 60 ára eða eldri, rík­is­stjórn­inni vel til að takast á við efna­hags­leg áhrif COVID-19 en 36 pró­sent þeirra sem eru 30 ára eða yngri. 16 pró­sent þeirra sem eru 60 ára eða eldri treysta rík­is­stjórn­inni illa en 42 pró­sent þeirra sem eru 30 ára eða yngri.

Fleiri telja almanna­varnir vera að gera of mikið

Þegar kemur að við­brögðum almanna­varna og heil­brigð­is­yf­ir­valda við far­aldr­inum hefur hlut­fall þeirra sem telja aðgerð­irnar of miklar auk­ist úr 18 pró­sentum í 24 pró­sent og hefur aldrei verið hærra.

Eftir því sem svar­endur eru yngri telja þeir almanna­varnir og heil­brigð­is­yf­ir­völd vera að gera of mik­ið. Þannig telja 24 pró­sent yngri en 30 ára að of mikið sé gert til að bregð­ast við far­aldr­inum en 13 pró­sent 60 ára og eldri.

Traust til almanna­varna og heil­brigð­is­yf­ir­valda eykst hins vegar lít­il­lega milli mæl­inga. 36 pró­sent bera full­komið traust til almanna­varna og heil­brigð­is­yf­ir­valda til að takast á við far­ald­ur­inn, sam­an­borið við 30 pró­sent í síð­ustu mæl­ingu. Aðeins tvö pró­sent treysta almanna­vörnum og heil­brigð­is­yf­ir­völdum mjög illa og sama hlut­fall alls ekki.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent