Eigandi Fréttablaðsins selur hlut sinn í Bláa lóninu til Stoða – Kaupverðið trúnaðarmál

Fjárfestingafélagið Stoðir hefur keypt hlut Helga Magnússonar í Bláa lóninu. Fyrir rúmum tveimur árum var hlutur hans metinn á um þrjá milljarða króna en hefur mat á virði félagsins hefur síðan lækkað.

Helgi Magnússon, aðaleigandi og stjórnarformaður Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins.
Helgi Magnússon, aðaleigandi og stjórnarformaður Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins.
Auglýsing

Félagið Hof­garðar ehf. sem er í eigu Helga Magn­ús­son­ar, hefur selt sex pró­sent hlut sinn í Bláa lón­inu til fjár­fest­inga­fé­lags­ins Stoða. Kaup­verðið er trún­að­ar­mál en Helgi segir þó að um „mikil verð­mæti“ sé að ræða. 

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag en Helgi er langstærsti eig­andi útgáfu­fé­lags þess. Hann er einnig á meðal hlut­hafa í Stoð­um, en það félag er eitt fyr­ir­ferða­mesta fjár­fest­inga­fé­lag á Íslandi og á stóra hluti í Sím­an­um, Kviku, Arion banka og Play. Stoðum er stýrt af Jóni Sig­urðs­syni. Helgi mun láta af störfum sem stjórn­ar­for­maður Bláa lóns­ins sam­hliða söl­unni.

Stærsti eig­andi félags­­ins er Hvatn­ing slhf. með eign­­ar­hlut upp á 39,6 pró­­sent. Eig­andi þess er Kólfur ehf., eign­­ar­halds­­­fé­lag að stærstu leyti í eigu Gríms Sæmund­sen, for­­stjóra Bláa lóns­ins, og Eðvard Júl­í­us­­son­­ar. Kólfur keypti tæp­­lega helm­ing í Hvatn­ingu af Horni II, fram­taks­­sjóði í stýr­ingu Lands­bréfa, árið 2018. Í þeim við­skiptum var Bláa lónið metið í heild á 50 millj­arða króna og hlutur Helga Magn­ús­sonar þá met­inn á um þrjár millj­arða króna. 

Næst stærsti eig­and­inn er Blá­varmi slhf., félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­­­sjóða, sem keypti 30 pró­­­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu á tæp­­­lega fimm­­­földu þáver­andi bók­­­færðu virði hlut­­­ar­ins í maí 2019, eða á 15 millj­­arða króna. 

Metið á um 40 millj­arða króna í upp­hafi árs

Síð­asta eina og hálfa árið hefur hins vegar verið erfið í rekstri Bláa lóns­ins líkt og fleiri ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. 

Bláa Lón­inu var gert að loka starfs­stöðvum sínum í Svarts­engi þann 23. mars 2020 í kjöl­far reglna um ferða­tak­mark­anir milli landa og sam­komu­banns sem sett var á. Starfs­stöðv­arnar voru opn­aðar aftur í fyrra­sumar en svo lokað aftur þegar kór­ónu­veiran fór aftur á kreik. Alls voru starf­stöðvar Bláa lóns­ins lok­aðar í sex mán­uði á árinu 2020.

Auglýsing
Bláa lónið tap­aði 20,7 millj­ónum evra, 3,2 millj­örðum króna, á  síð­asta ári og tekjur þess dróg­ust saman um 74 pró­sent frá árinu 2019. 

Heildar eigið fé Bláa lóns­ins var 57,2 millj­ónir evra, 8,9 millj­arðar króna, í lok síð­asta árs og óráð­stafað eigið fé félags­ins var 35,3 millj­ónir evra, um 5,5 millj­arðar króna. Eigið féð lækk­aði um 28 pró­sent í fyrra.

Í árs­skýrslum líf­eyr­is­sjóða sem eru á meðal hlut­hafa í bæði Hvatn­ingu og Blá­varma er hægt að sjá að þeir hafa lækkað verð­mat sitt á félag­inu á síð­asta ári og meta það nú á bil­inu 39-41 millj­arð króna. Miðað við það verð­mat hefur Helgi selt hlut sinn á 2,3 til 2,5 millj­arða króna.

Töp­uðu minna en greitt var út í arð árin áður

Tap Bláa lóns­ins á árinu 2020 var í heild lægra en síð­asta arð­greiðsla sem greidd var út úr félag­inu. Á árinu 2019 fengu hlut­hafar alls 30 millj­ónir evra, þá um 4,3 millj­arða króna, í arð­greiðslu vegna frammi­stöðu árs­ins á und­an. Árið áður, 2018, nam arð­greiðslan til hlut­hafa 16 millj­ónum evra, eða um 2,3 millj­örðum króna. Því var tap félags­ins í fyrra um 45 pró­sent af arð­greiðslum áranna 2018 og 2019.

­Vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sagði Bláa lónið upp 164 starfs­mönnum í lok mars og í lok maí var 402 starfs­mönnum til við­bótar sagt upp. Í lok ágúst voru 237 starfs­menn end­ur­ráðnir tíma­bundið en stærstur hluti þess hóps fékk ekki end­ur­ráðn­ingu í lok októ­ber. Alls fækk­aði með­al­fjölda starfs­manna á árinu 2020 miðað við heils­árs­störf úr 726 í 431. 

Bláa lónið fékk alls 591,2 millj­ónir króna í stuðn­ings­greiðslur úr rík­is­sjóði til að standa straum af kostn­aði vegna upp­sagna á starfs­fólki í fyrra. það úrræði stjórn­­­valda heim­il­aði fyr­ir­tækjum sem orðið höfðu fyrir miklu tekju­­falli að sækja styrk fyrir allt að 85 pró­­sent af launa­­kostn­aði á upp­­sagn­­ar­fresti í rík­­is­­sjóð.

Auk þess fengu 454 starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins laun í gegnum hluta­bóta­leið­ina í þrjá mán­uði á síð­asta ári. Eina fyr­ir­tækja­sam­steypan sem setti fleiri starfs­menn á leið­ina var Icelandair Group. 

Laun stjórnar og for­stjóra Bláa lóns­ins á síð­asta ári voru 811 þús­und evr­ur, um 126 millj­ónir króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent