Eignastýringarfyrirtækið BlackRock tapar 1,7 billjón dala

Tap bandaríska eignastýringarfyrirtækisins BlackRock á fyrri helmingi ársins samsvarar rúmlega sjötíufaldri landsframleiðslu Íslands. Aldrei áður hefur tap eins fyrirtækis verið jafn mikið á sex mánuðum.

Larry Fink er forstjóri og stjórnarformaður eignastýringarfyrirtækisins BlackRock. Hann er einnig einn af stofnendum fyrirtækisins.
Larry Fink er forstjóri og stjórnarformaður eignastýringarfyrirtækisins BlackRock. Hann er einnig einn af stofnendum fyrirtækisins.
Auglýsing

Black Rock sem er stærsta eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki heims tap­aði 1,7 billjón dala á fyrri helm­ingi árs­ins. Það er met en aldrei áður hefur fyr­ir­tækið skilað jafn miklu tapi á sex mán­aða tíma­bili. Frá þessu er greint á vef Daily Wire. 1,7 billjón er stór tala en hana má einnig rita sem 1.700 millj­arð­ar. Í krónum talið nemur tapið rúmum 230 billjónum – eða rúmum 232 þús­und millj­örð­um. Til að setja þessa tölu í eitt­hvað sam­hengi, þá er tapið rúm­lega sjö­tíu­föld lands­fram­leiðsla Íslands en í fyrra var hún rúmir 3200 millj­arðar króna.

BlackRock á stóra eign­ar­hluti í mörgum af stærstu fyr­ir­tækjum Banda­ríkj­anna, til að mynda á félagið 4,2 pró­senta hlut í App­le, 4,5 pró­senta hlut í Microsoft og 3,6 pró­senta hlut í Amazon. Umtals­verð lækkun hefur orðið á hluta­bréfa­verði vest­an­hafs það sem af er ári og það á sann­ar­lega við um verð á hluta­bréfum í þessum félög­um. Af þeim félögum sem hér hefur verið minnst á varð minnst lækkun á verði hluta­bréfa í hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Microsoft en á fyrri helm­ingi árs­ins lækk­aði það um rúm 13 pró­sent. Hluta­bréfa­verð Apple lækk­aði hins vegar um hátt í fjórð­ung og mest verð lækk­unin á verði hluta­bréfa Amazon, um tæp 38 pró­sent.

„Á fyrri helm­ingi árs­ins var fjár­fest­inga­um­hverfið með öðru sniði en verið hefur í ára­tug­i,“ var haft eftir Larry Fink, for­stjóra BlackRock, í hálfs­árs­upp­gjöri félags­ins. „Fjár­festar hafa glímt við mikla verð­bólgu, hækkun stýri­vaxta og verstu árs­byrjun í hálfa öld á mörk­uðum með bæði hluta- og skulda­bréf.“

Auglýsing

Þróun hluta­bréfa­verðs á Íslandi og í Banda­ríkj­unum svipað

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins lækk­aði S&P 500 vísi­talan um rúm­lega 21 pró­sent, en vísi­talan fylgir verði 500 stærstu fyr­ir­tækja Banda­ríkj­anna. Frá lokum júní hefur vísi­talan hækkað um 4,6 pró­sent en engu að síður hefur vísi­talan fallið um 17,4 pró­sent það sem af er ári.

Ef fer­ill hinnar íslensku Úrvals­vísi­tölu er skoð­aður sést að hann er nokkuð svip­aður ferli S&P 500 vísi­töl­unnar í ár. Úrvals­vísi­talan er sam­sett af þeim tíu félögum sem hafa virk­ustu verð­mynd­un­ina, eða með öðrum orð­um, þau félög sem mest við­skipti eru með á mark­aði. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins lækk­aði vísi­talan um rúm­lega fimmt­ung en frá júnílokum hefur hún hækkað um hátt í sex pró­sent. Frá ára­mótum hefur úrvals­vísi­talan samt sem áður lækkað um 17,1 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent