Einar Þorsteinsson vill leiða lista Framsóknar í Reykjavík

Fyrrverandi fréttamaðurinn Einar Þorsteinsson er kominn undan feldi og hefur hann ákveðið að gefa kost á sér í 1. sæti fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum.

Einar Þorsteinsson
Einar Þorsteinsson
Auglýsing

Einar Þor­steins­son fyrrum stjórn­andi Kast­ljóss á RÚV greindi frá því í Vik­unni hjá Gísla Mart­eini í kvöld að hann hefði ákveðið að gefa kost á sér í 1. sæti fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í Reykja­vík fyrir næstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar.

Fram kom í fjöl­miðlum í febr­úar að hann íhug­aði fram­boð fyrir Fram­sókn. „Ég er að íhuga það alvar­­lega,“ sagði hann en nú liggur ákvörð­unin fyr­ir.

„Maður kemur alveg löðr­andi sveittur undan þessum feldi hérna. Nei, þetta er svo­lítið skrítið að taka þetta skref en mér líður mjög vel með það. Og ég finn ein­hvern veg­inn – nú fer maður beint í fra­sana – að það hafa margir komið að máli við mig og allt það.

En ég ein­hvern veg­inn fann það strax að þegar fólk fór að tala um þetta að ég hef svosem verið að tala um stjórn­mál og það allt saman en ég hef ekki verið í neinum flokki,“ sagði Einar við Gísla Mart­ein í kvöld.

Auglýsing

Var tví­tugur með skrítnar skoð­anir en búinn að skipta um þær flestar

Þegar Einar var spurður hvort hann hefði ekki verið Sjálf­stæð­is­maður þá sagði hann að þegar hann var tví­tugur hefði hann verið með rosa­lega margar skrítnar skoð­anir og væri búinn að skipta um þær flest­ar.

„Þegar maður er í fréttum þá afteng­ist maður algjör­lega þess­ari flokkspóli­tísku hugs­un,“ sagði hann og bætti því við að þegar „maður er frétta­maður fer maður að skoða báðar hliðar mál­anna“. Eins og að vera í 30.000 fetum og greina kjarn­ann frá hism­inu. „Maður er að þjóna almenn­ingi og áhorf­endum sem eru að horfa. Og svo þegar ég fór að máta mig við stjórn­mála­flokka þá var það ein­hvern veg­inn bara aug­ljóst mál að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er eini flokk­ur­inn sem ég get verið í af því að þar er verið að skoða hlut­ina frá báðum hliðum – og öfga­laust.“

Hann sagði að eftir að hafa verið í almanna­þjón­ustu á RÚV hefði það legið beint við að fara í Fram­sókn. Fram kom í þætt­inum að Einar hefði talað við upp­still­ing­ar­nefnd en kjör­dæm­is­þing er í næstu viku og mun þá vera greint frá listum flokks­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent