Ekkert hefur gefið tilefni til sérstakrar skoðunar á fjármálum Reykjavíkurborgar

Varaþingmaður Sjálfstæðisflokks og frambjóðandi til borgarstjórnar spurði að því á þingi hvort fjármál Reykjavíkurborgar hefðu verið tekin til sérstakrar skoðunar. Svarið sem barst er að lykiltölur í rekstri borgarinnar hafi ekki gefið tilefni til þess.

Kjartan Magnússon er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og frambjóðandi til borgarstjórnar.
Kjartan Magnússon er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og frambjóðandi til borgarstjórnar.
Auglýsing

Hvorki eft­ir­lits­nefnd með fjár­málum sveit­ar­fé­laga né inn­við­a­ráðu­neytið hafa tekið fjár­mál Reykja­vík­ur­borgar til sér­stakrar skoð­un­ar. Ástæðan fyrir því er sú að lyk­il­tölur úr rekstri borg­ar­innar hafa ekki gefið til­efni til þess.

Þetta kemur fram í skrif­legu svari Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­a­ráð­herra við fyr­ir­spurn Kjart­ans Magn­ús­sonar vara­þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fram­bjóð­anda flokks­ins til borg­ar­stjórnar í Reykja­vík.

Spurn­ingar Kjart­ans til inn­við­a­ráð­herra voru lagðar fram er hann tók sæti á þingi á meðan á próf­kjörs­bar­áttu sjálf­stæð­is­manna í borg­inni stóð, en Kjart­an, sem var borg­ar­full­trúi frá 1999 til 2018, hafn­aði í 3. sæti í próf­kjöri flokks­ins.

Í jóm­frú­ar­ræðu sinni á Alþingi í byrjun febr­úar gerði hann fjár­hags­stöðu Reykja­vík­ur­borgar að umtals­efni, sagði hana grafal­var­lega og velti því upp hvort Reykja­vík­ur­borg væri komin í gjör­gæslu hjá ráðu­neyti sveit­ar­stjórn­ar­mála, sam­kvæmt frétt mbl.­is.

Sagð­ist hann ætla að leggja fram form­lega fyr­ir­spurn um málið til ráð­herra sveit­ar­stjórn­ar­mála, sem nú hefur svar­að. Kjartan óskaði eftir svörum við því hvort fjár­mál borg­ar­innar hefðu verið tekin til sér­stakrar skoð­unar og ef svo væri ekki, þá hvers vegna ekki.

Jákvæð afkoma flest ár og skuldir innan við­miða

Í svari inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins segir sem áður segir að ekki hafi verið til­efni til þess að skoða fjár­mál borg­ar­innar sér­stak­lega. Svo er útskýrt af hverju það hafi ekki verið gert.

Sett er upp tafla með lyk­il­tölum úr rekstri Reykja­vík­ur­borgar á árunum 2015-2020 þar sem sjá má að skulda­við­mið bæði sam­stæðu borg­ar­innar (A- og B-hluta) og A-hlut­ans, þess hluta borg­ar­sjóðs sem rek­inn er fyrir skatt­tekj­ur, var undir 150 pró­sentum öll þessi ár.

Auglýsing

Auk þess er rakið í svari ráð­herra að sam­stæða Reykja­vík­ur­borgar hafi upp­fyllt við­mið um jafn­vægi í rekstri, svo­kall­aða jafn­væg­is­reglu, sem sýni rekstr­ar­nið­ur­stöðu á þriggja ára tíma­bili og ein­ungis verið með nei­kvæða afkomu árið 2020. Skulda­við­mið sam­stæðu borg­ar­innar var 143 pró­sent árið 2020, en má alla jafna vera 150 pró­sent að hámarki, sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lög­um.

Vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hefur þeim lögum þó verið breytt og skulda­við­mið sveit­ar­fé­laga má vera 200 pró­sent fram til loka árs 2025. Meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn lagði fram fjár­hags­á­ætlun síð­asta haust, þar sem gert var ráð fyrir því að skulda­við­mið sam­stæð­unnar yrði á bil­inu 150 til 156 pró­­sent á árunum 2022 til 2025, en lækk­aði svo aftur undir 150 pró­sent­in.

Varð­andi A-hluta borg­ar­sjóðs segir í svar­inu frá ráð­herra að skulda­við­miðið hafi verið undir 150 pró­senta hámark­inu öll árin. Skulda­við­mið A-hluta borg­ar­innar var 56 pró­sent árið 2020.

Jafn­væg­is­reglan fór þó í mínus í borg­inni fyrir árin 2015, 2016 og 2017, eftir að hækkun líf­eyr­is­skuld­bind­inga vegna Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar að fjár­hæð 14,6 millj­arða króna var gjald­færð árið 2015.

„Þetta er stærsta skýr­ingin á nei­kvæðri rekstr­ar­nið­ur­stöðu um 13,6 millj­arða kr. á árinu 2015, sem hefur þau áhrif að jafn­væg­is­reglan er í mínus fyrir árin 2015, 2016 og 2017. Að öðru leyti er ekk­ert í lyk­il­töl­unum fyrir árin 2015–2020 sem hefur kallað á sér­staka skoðun á fjár­málum Reykja­vík­ur­borg­ar,“ segir í svari inn­við­a­ráð­herra við fyr­ir­spurn Kjart­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent