„Gjör rétt – ávallt“

Fjármála- og efnahagsráðherra segir að laun dómara eins og annarra æðstu embættismanna séu ekki lækka. Um sé að ræða leiðréttingu. Hann segir að það sé ekkert minna en siðferðisbrestur að skila því ekki sem ofgreitt var úr opinberum sjóðum.

Bjarni Beneditsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Beneditsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

„Í raun er málið ósköp ein­falt. Það snýst um að útgreidd laun voru hærri en þau laun sem greiða átti lögum sam­kvæmt. Það er óþol­andi að þetta hafi gerst en við því verður að bregð­ast.“

Þetta skrifar Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um ofgreidd laun æðstu emb­ætt­is­manna rík­is­ins í færslu á Face­book í dag.

Kjarn­inn greindi frá því í dag að Dóm­­ara­­fé­lag Íslands mót­­mælti harð­­lega „ólög­­mætri ákvörðun fjár­­­mála­ráð­herra um ein­hliða og aft­­ur­­virka skerð­ingu á kjörum dóm­­ara“. Í yfir­­lýs­ingu frá félag­inu segir að ákvörð­unin sé í and­­stöðu við gild­andi lög um launa­­kjör dóm­­ara og með henni sé vegið að rétti borg­­ar­anna til rétt­látrar máls­­með­­­ferðar fyrir sjálf­­stæðum og óvil­höllum dóm­stóli. Aðgerð­­irnar feli í sér atlögu fram­­kvæmda­­valds­ins að dóms­­vald­inu sem ekki eigi sér hlið­­stæðu í íslenskri rétt­­ar­­sög­u.

Auglýsing

Kjartan Björg­vins­­son, hér­­aðs­­dóm­­ari og ­for­­maður stjórnar Dóm­­ara­­fé­lags­ins, birtir yfir­­lýs­ing­una á Face­­book-­­síðu sinni. „Sú und­­ar­­lega ákvörðun blasti við dóm­­urum lands­ins í morgun að laun þeirra voru lækkuð fyr­ir­vara­­laust,“ skrifar hann enn­frem­­ur. „Þessi lækkun mun vera í umboði fjár­­­mála­ráð­herra sem hefur boðað frek­­ari og aft­­ur­­virkar skerð­ingar á launum dóm­­ara.“

Telur mál­stað­inn býsna auman

Bjarni segir aftur á móti í færslu sinni á Face­book að laun dóm­ara eins og ann­arra æðstu emb­ætt­is­manna séu ekki lækka, eins og for­maður dóm­ara­fé­lags­ins hefur sagt.

„Þau eru leið­rétt núna um mán­aða­mótin og hækka svo frá 1. júlí um 6,9 pró­sent frá þeirri leið­rétt­ingu. Frá þeim tíma verða launin nákvæm­lega þau sem þau eiga að vera lögum sam­kvæmt. Að ræða um geð­þótta­á­kvörðun fjár­mála­ráð­herra í þessu sam­hengi er frá­leitt. Fjár­hæðin er lög­á­kveð­in.

Mál­staður þeirra sem mót­mæla því að nú eigi að leið­rétta ofgreidd laun er býsna aum­ur. Ég vænti þess að þeir vilji bera fyrir sig að hafa tekið við of háum launum und­an­farin ár í góðri trú,“ skrifar hann.

„Stenst aug­ljós­lega enga skoð­un“

Þá telur Bjarni að önnur rök séu yfir­sterk­ari – og muni miklu.

„Þegar í hlut eiga æðstu emb­ætt­is­menn rík­is­ins, alþing­is­menn, ráð­herr­ar, for­seti lýð­veld­is­ins, dóm­ar­ar, seðla­banka­stjóri og sak­sókn­arar á ekki að þurfa opin­berar skeyta­send­ingar til að útskýra að rétt skal vera rétt.

Að halda því fram, líkt og for­maður dóm­ara­fé­lags­ins ger­ir, að þetta ein­falda mál snú­ist um rétt borg­ar­anna til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir sjálf­stæðum og óvil­höllum dóm­stólum stenst aug­ljós­lega enga skoð­un,“ skrifar hann jafn­framt.

Ráð­herr­ann segir að málið snú­ist frekar um að fólkið í land­inu ætti ekki að þurfa að hlusta á að það sé flókið fyrir efsta lag rík­is­ins, æðstu emb­ætt­is­menn­ina, að skila því sem ofgreitt var úr opin­berum sjóð­um. Annað væri hrika­legt for­dæmi og ekk­ert minna en sið­ferð­is­brest­ur.

„Gjör rétt. Ávallt,“ skrifar hann að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent