Ákvæði sem gerir Skattinum kleift að slíta félögum sem skila ekki inn ársreikningi sínum innan lögbundins frest er loksins orðið virkt, rúmum fimm árum eftir að lögin voru sett. Engu félagi hefur þó verið slitið.
Ársreikningaskrá hefur enn sem komið er ekki krafist skipta neinu félagi sem hefur ekki skilað ársreikningi innan lögboðins, frests þrátt fyrir að reglugerð sem virkjar ákvæði laga þess efnis hafi verið gefin út 18. október síðastliðinn.
Ákvæði sem heimilar slit á félögum sem sinna ekki lögbundinni skilaskyldu á ársreikningum hefur verið til staðar í lögum frá árinu 2016. Kjarninn greindi frá því í haust að henni hefði aldrei verið beitt, vegna þess að það ráðuneyti sem stýrir málaflokknum,, sá hluti atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem heyrir undir Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, hafi ekki gefið út reglugerð sem virkjar það.
Því hafði ákvæðið verið dauður stafur í fimm ár og engu félagi sem virt hefur lögin um skil á ársreikningi að vettugi hafði fyrir vikið verið slitið.
Lögbundinn frestur til að skila inn ársreikningi vegna ársins 2020 rann út í lok ágúst. Alls skiluðu 56 prósent þeirra 42.625 félaga sem eru skilaskyld reikningnum á réttum tíma. Stærri félög fengu þó lengri frest og áttu að skila fyrir lok septembermánaðar.
Ein umsögn barst
Í kjölfar umfjöllunar Kjarnans voru birt drög að reglugerð í samráðsgátt stjórnvalda sem heimilar ársreikningaskrá skattsins að slíta félögum sem hafa ekki skilað ársreikningum 14 mánuðum eftir að reikningsári lýkur.
Eftir að umsagnarfrestur rann út skrifaði ráðherra undir reglugerðina og hún var svo auglýst í stjórnartíðindum 18. október. Eftir þá auglýsingu tók hún gildi.
Hægt að sekta félög um 600 þúsund krónur
Það hefur lengi verið vandamál að fá íslensk félög til að skila ársreikningum inn til Skattsins á réttum tíma. Samkvæmt lögum á að skila slíkum átta mánuðum eftir að reikningsári lýkur, en í flestum tilfellum rennur sá frestur út 1. september á ári hverju. Árið 2007 höfðu einungis 15,4 prósent félaga í landinu sem áttu að skila inn ársreikningi gert það á réttum tíma.
Árið 2016 voru innleidd í lög viðurlög við því að skila ekki inn ársreikningi á réttum tíma. Annars vegar átti að vera hægt að sekta félög um 600 þúsund krónur ef þau skiluðu ekki innan átta mánaða og hins vegar átti að vera hægt að slíta þeim ef ársreikningar hefðu enn ekki borist sex mánuðum eftir að átta mánaða fresturinn rann út, eða 14 mánuðum eftir að reikningsári lauk.
Fyrir flest félög er 600 þúsund króna sekt ekki erfið viðureignar og því lá ljóst fyrir að hótun um slit á félagi myndi virka sem meiri hvati til skila en sektargreiðslan.
Fá frest eftir að fresturinn er liðinn
Í reglugerðinni kemur fram að þegar 14 mánaða fresturinn er liðinn muni ársreikningaskrá senda tilkynningu til viðkomandi félags, þar sem veittur verður fjögurra vikna frestur til þess að skila ársreikningi eða eftir atvikum samstæðureikningi sem uppfyllir kröfur laga. Ekki verða veittir frekari frestir af hálfu ársreikningaskrár.
Ef þessi lokafrestur er virtur að vettugi mun ársreikningaskrá senda héraðsdómi beiðni um að félag verði tekið til skipta.
Dómari mun svo meta framlagða kröfu og taka ákvörðun um meðferð hennar. „Ef stjórn félags eða framkvæmdastjóri mætir til fyrstu fyrirtöku getur dómari orðið við beiðni félags um allt að tveggja mánaða frest á meðferð kröfunnar[...]Ef fullnægjandi ársreikningi og samstæðureikningi ef við á, er skilað til ársreikningaskrár eftir að krafa um skipti hefur komið fram en áður en úrskurður um skipti er kveðinn upp, afturkallar ársreikningaskrá kröfu um skipti á félagi. Skilyrði afturköllunar kröfu um skipti, er að félag hafi greitt allan kostnað vegna skipta, sem og álagða sekt vegna vanrækslu á réttum skilum ársreikning.“