Ekki færri ungmenni í foreldrahúsum frá upphafi mælinga

Frá því að Hagstofa Íslands byrjaði að mæla hve margir á aldrinum 18-24 ára búa með foreldrum sínum hefur hlutfallið aldrei verið lægra en það var árið 2021. Töluverður munur er á milli ungra karla og kvenna í þessum efnum.

Mun færri ungar konur búa með foreldrum sínum en ungir karlar.
Mun færri ungar konur búa með foreldrum sínum en ungir karlar.
Auglýsing

Rúmur helm­ing­ur, eða 55,5 pró­sent ungs fólks á aldr­inum 18-24 ára, bjó í for­eldra­húsum á síð­asta ári, sam­kvæmt tölum úr lífs­kjara­könnun Hag­stofu Íslands. Frá því að Hag­stofan hóf að mæla búsetu ungs fólks í for­eldra­húsum árið 2004 hefur þetta hlut­fall aldrei verið lægra, en hæst var það árið 2016, er 62,2 pró­sent allra á þessum aldri bjuggu með for­eldrum sín­um.

Tals­verður munur er á milli ungra karla og kvenna hvað þetta varð­ar, en árið 2021 bjuggu 63,6 pró­sent karla á þessum aldri með for­eldrum sín­um, en 46,3 pró­sent kvenna. Hlut­fall karla sem búa hjá for­eldrum sínum hækk­aði frá fyrra ári á meðan að hlut­fall kvenna sem búa í for­eldra­húsum lækk­aði.

Sam­kvæmt því sem fram kemur í umfjöllun á vef Hag­stof­unnar virð­ist þessi kynja­munur þó jafn­ast út eftir því sem fólk eld­ist, en í hópi þeirra sem voru 25-29 ára árið 2021 bjuggu 23,6 pró­sent karla með for­eldrum sínum en 21,1 pró­sent kvenna. Hlut­fall kvenna sem búa í for­eldra­húsum á þessum aldri hefur auk­ist nokkuð á und­an­förnum árum, en á fyrstu árum mæl­inga Hag­stof­unnar voru oft innan við 10 pró­sent kvenna á aldr­inum 25-29 í for­eldra­hús­um.

Ungt fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er lík­legra til að búa í for­eldra­húsum en ungt fólk í lands­byggð­un­um. Árið 2021 bjuggu 51,2 pró­sent 18-29 ára gam­alla karla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með for­eldrum sínum en en 44,7 karla á sama aldri utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Þá bjuggu 45,4 pró­sent 18-29 ára kvenna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með for­eldrum sín­um, en ein­ungis 24,9 pró­sent kvenna utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Auglýsing

Sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar hafa orðið nokkuð miklar breyt­ingar á högum ungra kvenna á aldr­inum 18-29 ár utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á skömmum tíma, en árið 2019 bjuggu 42,5 pró­sent þeirra með for­eldrum sín­um. Hlut­fallið var orðið 24,9 pró­sent árið 2021, sem áður seg­ir.

Fæstir búa með for­eldrum á Norð­ur­lönd­unum

Í sam­an­burði við ríki Evr­ópu­sam­bands­ins búa til­tölu­lega fá ung­menni í for­eldra­húsum á Íslandi. Heilt yfir bjuggu um 80 pró­sent þeirra sem voru á aldr­inum 18-24 ára í for­eldra­húsum árið 2021, á meðan að hlut­fallið var 55,5 pró­sent á Íslandi. Hlut­fall ung­menna í for­eldra­húsum var lægst í Dan­mörku, þar sem rúm 34 pró­sent bjuggu með for­eldrum sínum á þessum aldri árið 2021, en hæst í Króa­tíu, þar sem tæp 96 pró­sent fólks á þessum aldri bjó með for­eldrum sín­um.

Sem áður segir bjuggu 22,5 pró­sent þeirra sem voru á aldr­inum 25-29 ára með for­eldrum sínum hér­lendis árið 2021. Í ríkjum ESB var þetta hlut­fall 42,1 pró­sent að með­al­tali, lægst á Norð­ur­lönd­un­um, ein­ungis 5 pró­sent fólks á þessum aldri bjó með for­eldrum sínum í Dan­mörku, tæp 7 pró­sent fólks á þessum aldri í Finn­landi og 7,5 pró­sent fólks á þessum aldri í Sví­þjóð. Hlut­fallið var hins vegar hæst í Króa­tíu, þar sem 77 pró­sent bjuggu með for­eldrum sínum og þar á eftir komu Ítalía og Grikk­land.

Fólk í for­eldra­húsum lík­legra til að vera í vinnu eða námi

Í sam­an­tekt Hag­stof­unnar eru einnig tölur um hlut­fall fólks á aldr­inum 16-24 ára sem ekki er í námi, vinnu eða starfs­þjálf­un. Árið 2021 átti það við um 6,3 pró­sent Íslend­inga á þessum aldri, og lækk­aði hlut­fallið úr 7,2 pró­sentum árið 2020.

Fólk sem bjó í for­eldra­húsum var sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar meira en tvö­falt lík­legra til þess að vera í námi, vinnu eða starfs­þjálfun en þau sem ekki búa með for­eldrum sínum á þessum aldri, en árið 2021 voru 12,8 pró­sent fólks á aldr­inum 16-24 ára sem ekki bjuggu í for­eldra­húsum ekki í námi, vinnu eða starfs­þjálfun sam­an­borið við 5,0 þeirra sem bjuggu með for­eldr­um.

Sjá má hvernig Ísland stendur í sam­an­burði við ríki Evr­ópu í þessum efnum hér að neð­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent