„Sumir leiðtogar stjórnarandstöðunnar mæla fyrir því að „loka landinu“, með tilheyrandi stórauknu atvinnuleysi og tekjutapi samfélagsins. Minna fer fyrir tillögum um aðrar leiðir til að skapa störf,“ skrifar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra í grein í Morgunblaðinu í dag. Galopin landamæri séu „ekki skammaryrði“ heldur „eðlilegur hluti þess að búa í frjálsu samfélagi“.
Hún segir að sömu stjórnmálaleiðtogum finnst „ekkert tiltökumál“ að settar verði á mjög víðtækar takmarkanir á frelsi almennings, jafnvel til langrar framtíðar. Upphrópanir af því tagi lýsi „uppgjöf og úrræðaleysi“ og fái „vonandi engan hljómgrunn“ meðal kjósenda í haust.
„Ég vona að stjórnarandstöðunni auðnist ekki að slíta í sundur þá einingu sem ríkt hefur meðal landsmanna í baráttunni gegn veirunni,“ skrifar ráðherrann. Talað sé um stefnuleysi á sama tíma og „virtir sérfræðingar“ hrósi ríkisstjórninni fyrir vandvirkni og hófsemi. Gagnrýnin snúist fyrst og fremst um of að fljótt hafi verið farið í afléttingar innanlands og látið af skimun bólusettra inn í landið. „Í þessu flest viðsnúningur af hálfu stjórnarandstöðunnar,“ skrifar Áslaug Arna, „enda byggðu ákvarðanirnar á tillögu sóttvarnalæknis. Hingað til hafa þessar sömu raddir lagt mikið upp úr að fylgja tillögum hans í einu og öllu.“
Ráðherrann skrifar að stöðugt verði að endurmeta aðgerðir, sér í lagi eftir „velheppnaðar og víðtækar“ bólusetningar hérlendis. „Þegar 90 prósent fullorðinna einstaklinga eru orðin bólusett þarf að slá nýjan takt í umræðuna, endurmeta aðstæður og leggja grunn að eðlilegu lífi á ný.“
Sóttvarnaaðgerðir hafi hingað til gengið vel, en þær nýjustu hafi „eðlilega“ komið flatt upp á marga. „Ráðstafanir sem við ætlum ekki að búa við til lengri tíma.“
Aðgerðirnar gilda til 13. ágúst og skrifar ráðherrann að gripið hafi verið til þeirra vegna óvissu um alvarleg veikindi bólusettra. „Það er ánægjulegt að sjá að 97% af þeim sem nú smitast eru einkennalausir. Með því er stærsta áfanganum náð, enda markmiðið ekki að telja smit til lengri tíma – heldur að koma í veg fyrir útbreidd alvarleg veikindi og sporna við álagi á heilbrigðiskerfið.“
Áslaug Arna skrifar að í aðgerðum gegn faraldrinum verði markmiðin að vera skýr. „Ekki má hringla með marklínuna. Nú þegar árangurinn verður metinn af bólusetningum sjáum við vonandi þær jákvæðu niðurstöður sem stefnt var að. Við höfum alltaf stefnt að því að bólusetningarnar geri okkur kleift að færa daglegt líf okkar allra til eðlilegs horfs með frelsið að leiðarljósi.“