Fá lengri frest til að skila umsögn um bankaskýrslu

Að beiðni Bankasýslu ríkisins hefur Ríkisendurskoðun veitt umsagnaraðilum framlengdan frest til 25. október til að skila umsögn um drög að skýrslu embættisins um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

íslandsbanki-8.jpg
Auglýsing

Rík­is­end­ur­skoðun hefur ákveðið að fram­lengja frest umsagn­ar­að­ila til að skila umsögn um drög að skýrslu sinni um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Stofn­unin sendi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, Banka­sýslu rík­is­ins og stjórn hennar drög að skýrsl­unni um banka­söl­una í síð­ustu viku og kom þá fram að umsagna­frestur þeirra væri til 19. októ­ber. Í stuttri til­kynn­ingu á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar í dag segir að frest­ur­inn hafi verið fram­lengdur til 25. Októ­ber að beiðni Banka­sýsl­unn­ar.

Er Rík­is­end­ur­skoðun til­kynnti um miðja síð­ustu viku um að skýrslu­drögin væru komin til umsagn­ar­að­ila var ítrekað var áréttað að trún­aður ríkir um umsagn­ar­drögin og að þau telj­ist vinnu­skjal í skiln­ingi laga. „Um skýrslu­drögin verður því ekki fjallað efn­is­lega í umsagn­ar­ferl­inu, hvorki af hálfu Rík­is­end­ur­skoð­unar né umsagn­ar­að­ila.“

Þegar búið er að fara yfir umsagnir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, Banka­sýslu rík­is­ins og stjórnar hennar mun Rík­is­end­ur­skoðun afhenda stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd skýrsl­una. Í kjöl­farið verður skýrslan svo gerð opin­ber.

Auk þess rann­sakar Fjár­­­mála­eft­ir­lit Seðla­­banka Íslands ýmsa þætti söl­unn­ar, sér­­stak­­lega við­­skipti sem áttu sér stað í aðdrag­anda söl­unnar og atferli hluta þeirra sölu­ráð­gjafa sem ráðnir voru til að selja hluti í bank­an­­um.

Átti að koma í júní

Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, ákvað þann 7. apríl 2022 að fela Rík­­is­end­­ur­­skoðun að rann­saka umgjörð og fyr­ir­komu­lag söl­unn­ar. Stofn­unin átti að leggja mat á hvort salan sam­rýmd­ist lögum og góðum stjórn­sýslu­hátt­um.

Auglýsing
Það var gert þrátt fyrir háværar kröfur um að skipuð yrði rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþing­is, sem hefur mun víð­tæk­­ari rann­­sókn­­ar­heim­ild­ir, til að fara yfir söl­una. Í könnun Gallup frá því í apríl kom fram að næstum þrír af hverjum fjórum aðspurðum vildi að rann­­sókn­­ar­­nefnd yrði skipuð og taldi að ekki væri nægj­an­­legt að Rík­­is­end­­ur­­skoðun skoð­aði mál­ið. Meiri­hluti kjós­­enda allra flokka utan eins, Sjálf­­stæð­is­­flokks, voru á þeirri skoð­un.

Upp­­haf­­lega átti að skila skýrsl­unni í jún­í­mán­uði. Það hefur hins vegar ítrekað dreg­ist og rúmt hálft ár verður frá því að óskað var eftir gerð hennar þar til hún mun birt­ast almenn­ingi.

Mikil og almenn gagn­rýni

Ástæða þess að Rík­is­end­ur­skoðun var falið að skoða þetta mál er mikil gagn­rýni sem kom fram í kjöl­far síð­­asta hluta sölu­­með­­­ferðar á hlutum í Íslands­­­banka, þegar 22,5 pró­­sent hlutur rík­­is­ins í bank­­anum var seldur til 207 fjár­­­festa í lok­uðu útboði á verði sem var undir mark­aðs­verði.

Hóp­ur­inn sem fékk að kaupa inn­i­hélt meðal ann­­ars starfs­­menn og eig­endur sölu­ráð­gjafa, litla fjár­­­festa sem rök­studdur grunur er um að upp­­­fylli ekki skil­yrði þess að telj­­ast fag­fjár­­­fest­­ar, erlenda skamm­­tíma­­sjóði sem höfðu sýnt það áður í verki að þeir hafi engan áhuga á að vera lang­­tíma­fjár­­­festar í Íslands­­­banka, fólk í virkri lög­­­reglu­rann­­sókn, aðila sem áttu stóra hluti í bönkum fyrir hrun og föður fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Könnun sem Gallup gerði skömmu eftir að salan var um garð gengin sýnd­i að 87,2 pró­­­sent lands­­­manna töldu að staðið hafi verið illa að útboði og sölu á hlut rík­­­is­ins í Íslands­­­­­banka, næstum sjö af hverjum tíu töldu að lög hefðu verið brotin og næstum níu af hverjum tíu töldu að óeðli­­legir við­­skipta­hættir hefðu verið við­hafð­­ir.

Kjarn­inn greindi frá því í byrjun októ­ber að ekki hafi verið tekin ákvörðun um áfram­hald­andi sölu eign­­­ar­hluta rík­­­is­ins í Íslands­­­­­banka. Yfir­­­lýs­ing for­­­manna stjórn­­­­­ar­­­flokk­anna þriggja frá 19. apríl, þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­­­ari hlutum í Íslands­­­­­banka að sinni, stendur því enn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent