Félagsmenn SFR og BSRB kröfðust þess á baráttufundi í dag að ríkisstjórn Íslands tæki raunhæf skref í átt að lausn á kjaradeilu SFR, SLFÍ og LL við ríkið. „Staðan er grafalvarleg,“ segir í ályktun fundarsins.
Ef ekkert verði að gert stefni í að fleiri þúsund starfsmenn innan almannaþjónustunnar fari í aðgerðir með tilheyrandi áhrifum og álagi á samfélagið allt.
Í ályktuninni segir enn fremur að kröfur SFR séu sanngjarnar, en beðið sé eftir því að ríkið komi fram með raunhæfar lausnir. „Félögin hafa lagt fram sanngjarnar, raunhæfar og skýrar kröfur. Þær byggja á þeim kjarasamningum sem ríkið hefur nú þegar gert við starfsmenn sína og niðurstöðum gerðardóms. Stjórnvöld hafa hins vegar sýnt félagsmönnum BSRB grímulaust virðingarleysi með því að bjóða þeim miklu lakari kjarabætur. Félagsmenn SFR, SLFÍ og LL geta ekki með nokkru móti sætt sig við framkomu stjórnvalda og harma afstöðu þeirra og það virðingarleysi sem birtist í tilboði þeirra og ekki síður í umfjöllun stjórnvalda um ríkisstarfsmenn. Fundurinn krefst þess að félagsmönnum SFR, SLFÍ og LL verði ekki mismunað með þessum hætti. Tilboð samninganefndar ríkisins er til þess gert að ýta undir aukna misskiptingu og breikka bilið á milli hópa sem leiðir til aukins ójafnaðar. Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi við samninganefndir félaganna í yfirstandandi kjaraviðræðum við ríkið og lýsir því yfir að samningar um eitthvað minna en aðrir hafa fengið verða felldir. Það er grundvallaratriði að félagsmenn SFR, SLFÍ og LL fái sanngjarnar leiðréttingar á kjörum sínum í samræmi við aðra samninga sem ríkisvaldið hefur þegar gert við starfsmenn sína, sem og það sem gerðardómur hefur ákvarðað,“ segir í ályktun SFR, sem Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR, sendi frá sér.