Fjármagnstekjuskattur á þau ríkustu allt að 43,4 prósent?

Nýjar og óstaðfestar skattatillögur Joe Biden Bandaríkjaforseta ollu titringi á fjármagnsmörkuðum á fimmtudag, en hann er sagður ætla að leggja til að fjármagnstekjuskattur á þau ríkustu í samfélaginu verði nærri tvöfaldaður.

Skattar, skattar, skattar. Fjárfestar í Bandaríkjunum urðu hvumsa í gær þegar það spurðist út að til stæði að hækka fjármagnstekjuskatt á þá tekjuhæstu í Bandaríkjunum allverulega.
Skattar, skattar, skattar. Fjárfestar í Bandaríkjunum urðu hvumsa í gær þegar það spurðist út að til stæði að hækka fjármagnstekjuskatt á þá tekjuhæstu í Bandaríkjunum allverulega.
Auglýsing

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti mun á næstu dögum kynna áætl­anir um miklar skatta­hækk­anir á rík­ustu hópana í banda­rísku sam­fé­lagi til þess að standa straum af kostn­aði við félags­legar aðgerðir af ýmsu tagi.

Til­lögur Bidens, sem New York Times sagði fyrst frá á fimmtu­dag, fela í sér að fjár­magnstekju­skattur þeirra sem þéna yfir 1 milljón dala, jafn­virði 126 millj­óna króna, hækki upp í 39,6 pró­sent.

Í dag tekur alríkið 20 pró­sent skatt af fjár­magnstekjum þessa hóps og því væri um hart­nær tvö­földun að ræða, ef til­lögur Bidens færu í þess­ari mynd í gegnum Banda­ríkja­þing.

Til við­bótar bæt­ist svo líka 3,8 pró­senta sér­stakur skattur á hagnað af fjár­fest­ingum og því gæti fjár­magnstekju­skattur alrík­is­stjórn­ar­innar í ákveðnum til­fellum farið upp í 43,4 pró­sent.

Sum ríki Banda­ríkj­anna leggja að auki á sína eigin fjár­magnstekju­skatta, mis­háa. Að þeim með­töldum gæti fjár­magnstekju­skattur þeirra tekju­hæstu í Kali­forn­íu­ríki farið upp í 56,7 pró­sent, sam­kvæmt frétt Bloomberg.

Biden er sömu­leiðis sagður ætla að leggja til að tekju­skatts­pró­sentan í efsta þrepi fari úr 37 pró­sentum og aftur upp í 39,6 pró­sent. Það er sama pró­senta og var á efsta þrep­inu (af alls sjö þrep­um) í banda­ríska tekju­skatts­kerf­inu þegar Don­ald Trump tók við sem for­seti Banda­ríkj­anna í upp­hafi árs 2017.

Búist er við að Biden kynni þessar skatta­hækk­un­ar­til­lög­ur, sem eru hluti af fjár­mögnun fjöl­skyldu­á­ætl­unar hans, Amer­ican Families Plan, í ræðu á Banda­ríkja­þingi á mið­viku­dag­inn í næstu viku, 28. apr­íl.

Fjár­mála­heim­ur­inn hefur ekki trú á því að 39,6 pró­sent standi

Titr­ings varð vart á hluta­bréfa­mörk­uðum í Banda­ríkj­unum eftir að fréttir fóru að birt­ast um áætl­anir Bidens á fimmtu­dag.

Í frétt Fin­ancial Times eru tekin saman nei­kvæð við­brögð hinna ýmsu fjár­festa við tíð­ind­un­um, en þar segir að nú sé búist við því að margir fjár­festar selji hluta­bréf sem þeir haldi á til að tryggja að sölu­and­virði þeirra falli ekki undir hina boð­uðu hærri skatt­pró­sentu.

Auglýsing

Ekki hefur hins vegar neitt komið fram um það hvenær ráð­gert er að láta boð­aðar breyt­ingar taka gildi, hvort það verði frá og með maí­mán­uði eða síð­ar.

Í frétt FT er einnig vitnað til manns að nafni Brad Dillon, sem starfar sem auð­ráð­gjafi hjá fyr­ir­tæk­inu UBS Global Wealth Mana­gement. Hann seg­ist ekki hafa trú á því að þessi mikla hækkun á fjár­magnstekju­skatti fari óbreytt í gegnum þing­ið.

Í sam­an­tekt Reuters á við­brögðum úr fjár­mála­heim­inum sjást svipuð við­horf, ýmsir virð­ast telja að með því að setja fram til­lögur að svona miklum skatta­hækk­unum sé Biden að búa sér til samn­ings­stöðu inn í þing­ið.

Fjár­fest­ing­ar­bank­inn Gold­man Sachs birti sömu­leiðis í gær grein­ingu sína á mál­inu. Ólík­legt væri að til­lögur Bidens í þeirri mynd sem fjallað hefði verið um færu óbreyttar í gegn um þing­ið, þar sem demókratar hafa tæpan meiri­hluta í öld­unga­deild­inni. Lík­legra væri að fjár­magnstekju­skatt­ur­inn á tekju­hæstu hópana yrði hækk­aður upp í 28 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent