Atvinnulausum fækkaði enn í síðasta mánuði og skráð atvinnuleysi fór úr 6,1 í 5,5 prósent milli mánaða. Alls fækkaði þeim sem voru ekki með vinnu um 1.010 í ágúst. Atvinnuleysi hefur næstum helmingast frá því mars þegar það mældist ellefu prósent og alls 21.019 voru atvinnulausir að öllu leyti. Þeir eru nú 11.499 talsins.
Atvinnuleysið er mest á Suðurnesjum, eða 9,7 prósent. Þar á eftir er mesta atvinnuleysið á höfuðborgarsvæðinu, eða 6,1 prósent.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar um vinnumarkaðinn á Íslandi sem birt var í dag.
Langtímaatvinnuleysi er þó enn mikið og alls 5.038 manns höfðu verið atvinnulausir í eitt ár eða lengur í lok síðasta mánaðar. Til samanburðar þá höfðu 3.051 manns verið atvinnulausir í tólf mánuði eða lengur í ágúst í fyrra.
Ráðningastyrkir ráðandi
Ástæður þess að atvinnuleysið hefur minnkað svona hratt eru aðallega tvíþættar. Annars vegar er um árstíðabundna sveiflu að ræða, en störfum fjölgar mikið á sumrin á Íslandi þegar háannatíma mannaflsfrekasta atvinnuvegar þjóðarinnar, ferðaþjónustu, gengur í garð. Þegar ferðamönnum fer að fækka á ný með haustinu má ætla, miðað við þróun fyrri ára, að störfum í ferðaþjónustugeiranum fækki samhliða.
Kjarninn greindi frá því í frétt um miðjan júlí að um fimm þúsund umsóknir um ráðningastyrki hefðu verið afgreiddar og að heildargreiðslur í tengslum við átakið á þeim tíma hefðu numið 1,4 milljarði króna.
Alls komu inn 908 ný störf sem auglýst voru í vinnumiðlun hjá Vinnumálastofnun í ágúst. Um fjölbreytt störf var að ræða, flest störfin voru störf verkafólks í ýmiss konar þjónustu eða 306 störf. Í skýrslu stofnunarinnar fyrir síðast mánuði segir að flest auglýstra starfa séu átaksverkefni eða reynsluráðningar eða um 73 prósent. Af þeim 1.038 sem fækkaði um á atvinnuleysisskrá fór um 500 á ráðningastyrk.
Ráðningastyrkir renna út í haust
Nokkrar tegundir styrkja eru í boði. Samkvæmt yfirliti yfir styrkina á heimasíðu Vinnumálastofnunar geta fyrirtæki fengið styrk sem nemur allt að 307.430 krónum á mánuði að viðbættu mótframlagi í lífeyrissjóð, samtals tæplega 343 þúsund krónur, í sex mánuði ef fyrirtækið ræður starfsmann sem hefur verið á atvinnuleysisskrá í að minnsta kosti einn mánuð. Lítil og meðalstór fyrirtæki með færri en 70 starfsmenn geta fengið enn hærri styrk. Ef slíkt fyrirtæki ræður atvinnuleitanda sem hefur verið á atvinnuleysisskrá í að minnsta kosti ár fær það styrk sem nemur fullum mánaðarlaunum að hámarki tæplega 473 þúsund krónum að viðbættu mótframlagi í lífeyrissjóð, samtals rúmlega 527 þúsund krónur.
Til að setja umfang þessa átaks í einhverskonar samhengi þá greindi Vinnumálastofnun frá því í nýjustu skýrslu sinni um vinnumarkaðinn að 89 prósent allra auglýstra starfa í júlímánuði hafi verið átaksverkefni eða reynsluráðningar.
Ráðningastyrkir þeirra sem voru ráðnir á slíkum strax í upphafi renna út í október, skömmu eftir komandi kosningar. Þá á eftir að koma í ljós hversu mörgum þeirra sem hafa verið ráðnir á slíkum styrkjum verði haldið í vinnu þegar atvinnurekendur þurfa að fara að greiða laun þeirra í heild.