Fleiri kjósendur Viðreisnar ánægðir með stjórn sem flokkurinn er ekki í en óánægðir

Eftir því sem fólk er eldra og er með hærri tekjur, því ánægðari er það með nýskipaða ríkisstjórn. Stuðningsmenn ríkisstjórnarflokkanna eru allir mun ánægðari en ekki. Einungis fjögur prósent Sjálfstæðismanna eru ósáttir.

Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur.
Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur.
Auglýsing

Því eldra sem fólk er og því hærri sem tekjur þess eru, því ánægð­ari er það með áfram­hald rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dótt­ur, sem sam­anstendur af Vinstri græn­um, Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki. 

Kjós­endur allra flokk­anna eru mun ánægð­ari með ráða­hag­inn en óánægð­ir. Alls segj­ast 92 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks vera ánægðir með nýskip­aða rík­is­stjórn og 84 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks eru sama sinn­is. Ein­ungis fjögur pró­sent Sjálf­stæð­is­manna og sex pró­sent Fram­sókn­ar­manna eru óánægðir með stjórn­ina. 

Alls 71 pró­sent stuðn­ings­manna Vinstri grænna eru ánægðir með nýskip­aða rík­is­stjórn og ein­ungis átta pró­sent þeirra eru óánægð­ir. 

Þetta kemur fram í nýbirtum þjóð­ar­púlsi Gallup. Heilt yfir er helm­ingur lands­manna ánægður með nýskip­aða rík­is­stjórn en tæp­lega þriðj­ungur óánægð­ur. Þá telja flest­ir, næstum þrír af hverjum fjórum, að stjórn­ar­sam­starfið muni halda út kjör­tíma­bil­ið. Ein­ungis 17 pró­sent telja það ólík­legt. Alls eru 42 pró­sent lands­manna ánægðir með val á ráð­herrum í rík­is­stjórn­ina en 36 pró­sent óánægð­ir.

Mynd: Þjóðarpúls Gallup

Afstaða kjós­enda­hóps Vinstri grænna til veru Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks í rík­is­stjórn hefur breyst mikið á síð­ustu árum. Í aðdrag­anda kosn­inga 2017 vildu ein­ungis þrjú pró­sent kjós­enda flokks­ins sjá Sjálf­stæð­is­flokk­inn í rík­is­stjórn og tólf pró­sent Fram­sókn­ar­flokk­inn, sam­kvæmt könnun sem Gallup gerði þá.

Nið­ur­staðan er heldur ekki í takti við könnun Pró­sents sem birt var í Frétta­blað­inu í vik­unni. Sam­kvæmt henni voru 53 pró­­sent kjós­­enda Vinstri grænna ánægðir með ráða­hag­inn sem flokk­­ur­inn valdi sér. 

Kjós­endur Við­reisnar nokkuð sáttir

Athygli vekur að fleiri kjós­endur Við­reisn­ar, sem á ekki aðild að rík­is­stjórn­inni, eru ánægðir með nýskip­aða rík­is­stjórn en þeir sem eru ánægð­ir. Alls 41 pró­sent stuðn­ings­manna Við­reisnar til­heyra fyrri hópnum en 39 pró­sent þeim síð­ar­i. 

Hjá öðrum stjórn­ar­and­stöðu­flokkum er yfir­gnæf­andi and­staða við stjórn­ar­sam­starfið og hún er mest hjá kjós­endum Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, en sex pró­sent þeirra segj­ast ánægðir með sam­starfið á meðan að 77 pró­sent þeirra eru á mót­i. 

Auglýsing
Væntir kjós­endur Sós­í­alista­flokks Íslands, sem náði ekki inn á þing í síð­ustu kosn­ing­um, eru á svip­uðum slóðum og ein­ungis fimm pró­sent þeirra eru ánægðir með nýtil­kynnta rík­is­stjórn en 86 pró­sent eru á móti henn­i. 

Í lægstu tekju­hóp­unum er afger­andi meiri óánægja með rík­is­stjórn­ina en ánægja en ánægjan eykst eftir því sem meira er í vesk­inu hver mán­aða­mót, og er mest hjá þeim sem eru með 1.250 þús­und krónur eða meira á mán­uði í fjöl­skyldu­tekj­ur. Innan þess hóps segj­ast 58 pró­sent vera ánægðir en 26 pró­sent eru óánægð­ir.

And­staðan við rík­is­stjórn­ina er mest hjá lands­mönnum undir þrí­tugu, þar sem 39 pró­sent eru ánægðir með hana en 45 pró­sent óánægð­ir.

Elstu tveir ald­urs­hóp­arn­ir, sem inni­halda lands­menn yfir fimm­tugu, eru að sama skapi sátt­ast­ir. Ánægja með rík­is­stjórn­ina þar mælist 56 til 58 pró­sent en óánægja 24 til 27 pró­sent. 

Könn­unin var gerð 1. til 12. des­em­ber. Heild­ar­úr­taks­stærð var 1.619 og svar­hlut­fall 52,5 pró­sent.

Mjög svipuð staða og í kosn­­ing­unum

Í síð­­­ustu könnun sem Gallup gerði á fylgi flokka, sem birt var 2. des­em­ber síð­­ast­lið­inn kom fram að litlar breyt­ingar voru á fylgi ­flokka milli mán­aða 

Þar bar helst til tíð­inda að fylgi Sam­­­fylk­ing­­­ar­innar jókst um 0,9 pró­­­sent­u­­­stig og mæld­ist 10,7 pró­­­sent en fylgi Pírata dróst saman um 0,8 pró­­­sent­u­­­stig og mæld­ist slétt ell­efu pró­­­sent.

Fylgi ann­­­arra flokka var nán­­­ast það sama og það var í lok októ­ber. Stjórn­­­­­ar­­­flokk­­­arnir þrír eru þeir flokkar sem njóta mest stuðn­­­ings. Sjálf­­­stæð­is­­­flokk­­­ur­inn mæld­ist áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins með 22,7 pró­­­sent fylgi og Fram­­­sókn sá næst stærsti með 17 pró­­­sent fylgi. Vinstri græn fylgdu þar á eftir með 13 pró­­­sent fylgi. Sam­eig­in­­­legt fylgi rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­­­flokk­anna var því 52,7 pró­­­sent, sem er 0,7 pró­­­sent­u­­­stigum minna en mán­uði áður og 1,6 pró­­­sent­u­­­stigum minna en flokk­­­arnir þrír fengu sam­an­lagt í kosn­­­ing­unum í sept­­­em­ber.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent