Fleiri tungumál deyja en internetið tileinkar sér

google_translate.jpg
Auglýsing

Tungu­mál deyja hraðar út en bætt er við á inter­net­ið. Nokkur af stærstu vef­fyr­ir­tækjum í heim­inum hafa lagt mikið kapp á að bæta við fleiri tungu­málum sem hægt er að lesa vefi þeirra á. Google fer þar fremst í flokki bæði hvað varðar tungu­mála­skiln­ing og fjölda tungu­mála, eftir að hafa bætt við tíu asískum og afrískum þýð­ingum á vef sinn í lok árs 2014.

Quartz tók saman gögn frá vefnum Ethnologue, þar sem finna má gögn um meira en 7.000 lif­andi tungu­mál um allan heim, og skýrslu frá Sam­ein­uðu þjóð­unum um hnignun og útdauða tungu­mála. Í skýrsl­unni má lesa að árið 2012 hafi lif­andi tungu­mál verið um 8.000 en í ár eru þau aðeins um 7.100.

Á sama tíma hefur fjöldi tungu­mála í notkunn í leit­ar­vélum Google og á alfræði­vefnum Wikipediu nærri staðið í stað. Stað­færð tungu­mál, þe. áætl­aður fjöldi tungu­mála sem töluð er á ver­ald­ar­vefn­um, hafa staðið í stað og eru enn um 500 eins og árið 2012.

Auglýsing


Það kann hins vegar að vera vill­andi að tala um fjölda tungu­mála án þess að átta sig á því hversu margir tala þau. 40,2 pró­sent alls mann­kyns tala átta tungu­mál, eða 0,1 pró­sent allra tungu­mála í heim­in­um. Þessi átta tungu­mál eru kín­verska, spænska, enska, hindí, arab­íska, portú­ga­ska, bengalska og rúss­neska. Í þess­ari upp­taln­ingu verður hins vegar að minn­ast á að fjöl­margar mis­mu­anndi mál­ískur má finna af bæði kín­versku og arab­ísku.

Sam­kvæmt Ethnologue eru meira en fimmt­ungur allra tungu­mála heims­ins „í vand­ræð­um“ (e. in trou­ble) sem þýðir að þeim sem tala tungu­málin fækk­ar. 13 pró­sent allra tungu­mála heims­ins eða 916 eru að deyja út sem þýðir að tungu­málin verða vart arf­leidd næstu kyn­slóð.

Ef fjöldi tungu­mála er hættur að aukast eftir að um 500 mál hafa kom­ist á vef­inn hefur spá ung­verska tungu­mála­stærð­fræð­ings­ins András Kornai ræst. Í rann­sókn sinni frá 2013 spáði hann því að aðeins fimm pró­sent tungu­mála heims­ins gætu lifað af á vefn­um. Þessi fimm pró­sent tungu­mála tala um það bil sex millj­arðar manna eða um það bil 94 pró­sent alls mann­kyns, sam­kvæmt töl­fræði Ethnologue.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None