„Rauði krossinn á Íslandi fordæmir brottvísanir íslenskra stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem þegar hafa fengið stöðu sína viðurkennda í Grikklandi. Félagið hefur ítrekað gagnrýnt brottvísanir til Grikklands og telur að þær skapi fólki hættu sem íslensk stjórnvöld beri ábyrgð á.“
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Rauða krossinum sem send var fjölmiðlum í dag. Fimmtán umsækjendum um alþjóðlega vernd, sem sumir hverjir hafa dvalið á Íslandi í um tvö ár og höfðu sent beiðni um endurupptöku mála sinna til kærunefndar útlendingamála, voru fluttir í lögreglufylgd úr landi í leiguflugvél í nótt. Förinni er heitið til Grikklands.
Í henni harmar félagið meðferð stjórnvalda á þeim á viðkvæma hópi umsækjenda um alþjóðlega vernd sem frelsissviptir hafa verið og þvingaðir úr landi. Í því sambandi áréttar félagið að stjórnvöld eru bundin af grundvallarreglu stjórnsýsluréttarins um meðalhóf en samkvæmt henni skal stjórnvald einungis taka svo íþyngjandi ákvörðun, líkt og frelsissvipting er, þegar lögmætu markmiði sem að er stefnt verður ekki náð með öðru og vægara móti.
Í ljósi fréttaflutnings af brottvísun fatlaðs einstaklings sem notast við hjólastól vill Rauði krossinn benda á þá alþjóðlegu mannréttindasamninga sem Ísland er aðili að, m.a. samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og Mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt framangreindum samningum skulu aðildarríki þeirra gera allar ráðstafanir til að vernda fólk, þar á meðal fatlaða einstaklinga, fyrir pyndingum eða annarri grimmilegri, ómannlegri eða niðurlægjandi meðferð eða refsingu.
Rauði krossinn hefur ítrekað bent á að fjölda heimilda beri saman um að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu heilt yfir mjög slæmar. „Umsækjendur, sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og seinna leitað hingað til lands og óskað eftir alþjóðlegri vernd, hafa jafnframt undantekningarlaust greint frá óviðunandi aðstæðum í Grikklandi,“ segir í yfirlýsingunni. „Hefur yfirgnæfandi meirihluti þeirra búið í yfirfullum flóttamannabúðum þar sem öryggi, hreinlæti og aðbúnaði er verulega ábótavant.“
Kerfisbundnar hindranir
Þegar umsækjendur hafi hlotið vernd neyðist þeir til að yfirgefa búðirnar, auk þess sem þeir missa þá lágu framfærslu sem þeim er tryggð á meðan þeir bíða eftir svari við umsókn sinni um vernd. Vegna kerfisbundinna hindrana og afar mikils atvinnuleysis meðal flóttafólks í landinu ná umsækjendur að sögn Rauða krossins ekki að framfleyta sér og fjölskyldum sínum en fjárhagslegur og félagslegur stuðningur frá yfirvöldum er enginn. Þá er aðgengi flóttafólks að húsnæði í Grikklandi alvarlegt vandamál og þurfa margir hverjir af þeim sökum að hafast við í óviðunandi og/eða ólöglegu húsnæði eða á götunni. Þar að auki er aðgengi flóttafólks að grísku heilbrigðiskerfi verulega skert.
„Rauði krossinn ítrekar fyrri tilmæli sín til hérlendra stjórnvalda og hvetur ríkisstjórn Íslands eindregið til að endurskoða þá stefnu að senda umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem fengið hafa stöðu sína viðurkennda í Grikklandi, aftur þangað. Ástandið í Grikklandi hefur um nokkurt skeið verið óboðlegt fyrir flóttafólk en fólk á flótta á að njóta mannréttinda á sama hátt og annað fólk.“