Fordæma brottvísanir og segja ástandið í Grikklandi óboðlegt

Rauði krossinn á Íslandi fordæmir brottvísanir stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd og harmar að fólk í viðkæmri stöðu hafi verið frelsissvipt og þvingað úr landi.

Rauði krossinn Mynd: Rauði krossinn
Auglýsing

„Rauði kross­inn á Íslandi for­dæmir brott­vís­anir íslenskra stjórn­valda á umsækj­endum um alþjóð­lega vernd sem þegar hafa fengið stöðu sína við­ur­kennda í Grikk­landi. Félagið hefur ítrekað gagn­rýnt brott­vís­anir til Grikk­lands og telur að þær skapi fólki hættu sem íslensk stjórn­völd beri ábyrgð á.“

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Rauða kross­inum sem send var fjöl­miðlum í dag. Fimmtán umsækj­endum um alþjóð­lega vernd, sem sumir hverjir hafa dvalið á Íslandi í um tvö ár og höfðu sent beiðni um end­ur­upp­töku mála sinna til kæru­nefndar útlend­inga­mála, voru fluttir í lög­reglu­fylgd úr landi í leiguflug­vél í nótt. För­inni er heitið til Grikk­lands.

Auglýsing

Í henni harmar félagið með­ferð stjórn­valda á þeim á við­kvæma hópi umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem frels­is­sviptir hafa verið og þving­aðir úr landi. Í því sam­bandi áréttar félagið að stjórn­völd eru bundin af grund­vall­ar­reglu stjórn­sýslu­rétt­ar­ins um með­al­hóf en sam­kvæmt henni skal stjórn­vald ein­ungis taka svo íþyngj­andi ákvörð­un, líkt og frels­is­svipt­ing er, þegar lög­mætu mark­miði sem að er stefnt verður ekki náð með öðru og væg­ara móti.

Í ljósi frétta­flutn­ings af brott­vísun fatl­aðs ein­stak­lings sem not­ast við hjóla­stól vill Rauði kross­inn benda á þá alþjóð­legu mann­rétt­inda­samn­inga sem Ísland er aðili að, m.a. samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks og Mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu. Sam­kvæmt fram­an­greindum samn­ingum skulu aðild­ar­ríki þeirra gera allar ráð­staf­anir til að vernda fólk, þar á meðal fatl­aða ein­stak­linga, fyrir pynd­ingum eða annarri grimmi­legri, ómann­legri eða nið­ur­lægj­andi með­ferð eða refs­ingu.

Rauði kross­inn hefur ítrekað bent á að fjölda heim­ilda beri saman um að aðstæður flótta­fólks í Grikk­landi séu heilt yfir mjög slæm­ar. „Um­sækj­end­ur, sem hlotið hafa alþjóð­lega vernd í Grikk­landi og seinna leitað hingað til lands og óskað eftir alþjóð­legri vernd, hafa jafn­framt und­an­tekn­ing­ar­laust greint frá óvið­un­andi aðstæðum í Grikk­land­i,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Hefur yfir­gnæf­andi meiri­hluti þeirra búið í yfir­fullum flótta­manna­búðum þar sem öryggi, hrein­læti og aðbún­aði er veru­lega ábóta­vant.“

Kerf­is­bundnar hindr­anir

Þegar umsækj­endur hafi hlotið vernd neyð­ist þeir til að yfir­gefa búð­irn­ar, auk þess sem þeir missa þá lágu fram­færslu sem þeim er tryggð á meðan þeir bíða eftir svari við umsókn sinni um vernd. Vegna kerf­is­bund­inna hind­r­ana og afar mik­ils atvinnu­leysis meðal flótta­fólks í land­inu ná umsækj­endur að sögn Rauða kross­ins ekki að fram­fleyta sér og fjöl­skyldum sínum en fjár­hags­legur og félags­legur stuðn­ingur frá yfir­völdum er eng­inn. Þá er aðgengi flótta­fólks að hús­næði í Grikk­landi alvar­legt vanda­mál og þurfa margir hverjir af þeim sökum að haf­ast við í óvið­un­andi og/eða ólög­legu hús­næði eða á göt­unni. Þar að auki er aðgengi flótta­fólks að grísku heil­brigð­is­kerfi veru­lega skert.

Auglýsing

„Rauði kross­inn ítrekar fyrri til­mæli sín til hér­lendra stjórn­valda og hvetur rík­is­stjórn Íslands ein­dregið til að end­ur­skoða þá stefnu að senda umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, sem fengið hafa stöðu sína við­ur­kennda í Grikk­landi, aftur þang­að. Ástandið í Grikk­landi hefur um nokk­urt skeið verið óboð­legt fyrir flótta­fólk en fólk á flótta á að njóta mann­rétt­inda á sama hátt og annað fólk.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent