Forgangsverkefni lögreglu að berjast gegn umfangsmiklu peningaþvætti

Talið er nærri öruggt að umfangsmikið peningaþvætti fari fram á Íslandi og er það eitt af forgangsverkefnum lögreglu að berjast gegn fjármögnun á brotastarfsemi og peningaþvætti.

krónur
Auglýsing

Í nýrri skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra um skipu­lagða brota­starf­semi segir að pen­inga­þvætti sé alvar­legur vandi í íslensku sam­fé­lagi og sést það ekki síst á mik­illi fjölgun slíkra mála.

Skrif­­stofu fjár­­­mála­­grein­inga lög­­­reglu, sem sér um að rann­saka meint pen­inga­þvætti, fékk alls 2.033 ábend­ingar í fyrra. Það er 23,5 pró­­sent fleiri ábend­ingar en árið áður og 70 pró­­sent fleiri en árið 2018. Alls var pen­inga­þvætti rann­sakað í 250 málum í fyrra, sam­an­borið við 16 mál árið 2017. Algegnt er að pen­inga­þvætti sé rann­sakað sam­hliða öðrum brot­um, svo sem í tengslum við þjófn­að, fjársvik, fjár­drátt og fíkni­efna­brot.

Auglýsing

Fjölgun mála rakin til bætts reglu­verks

­Pen­inga­þvætt­is­varnir íslenskra fjár­mála­fyr­ir­tækja hafa verið hertar á und­an­förnum árum eftir að hafa verið í ólagi árum saman og því má rekja fjölgun mála til bætts reglu­verks. Ástæður þess að ráð­ist var í að bæta reglu­verkið má meðal ann­ars rekja til árs­ins 2018 þegar alþjóð­­­­legu sam­tökin Fin­ancial Act­­ion Task Force (FATF) gáfu pen­inga­þvætt­is­vörnum Íslands fall­ein­kunn í úttekt sem skil­aði Íslandi á svo­­kall­aðan gráan lista sam­tak­anna. Umbættur voru gerðar á starf­­­­sem­inni og starfs­­­­fólki fjölgað til muna. Þá kom fram í áhættu­mati vegna pen­inga­þvættis og fjár­mögn­unar hryðju­verka sem gefið var út árið 2019 að vís­bend­ingar væru um að málum vegna pen­inga­þvættis færi fjölg­andi. Þessi ábend­ing reynd­ist rétt­mæt.

Óvíst um hversu háar upp­hæðir er að ræða

Heild­ar­upp­hæð hald­lagðra eða kyrr­settra fjár­muna í tengslum við rann­sóknir mála á pen­inga­þvætti liggur ekki fyr­ir. Fram kemur í skýrsl­unni að grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra meti það svo að bæta þurfi skrán­ingar lög­reglu er varðar kyrr­setn­ingu og hald­lagn­ingu fjár­muna í pen­inga­þvætt­is­mál­um. Vitað er að skað­semi pen­inga­þvættis og skattsvika er mikil og eru skattaund­an­skot talin nema 4% af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu hið minnsta eða um 100 millj­örðum á ári.

Í skýrsl­unni segir enn fremur að tengsl skipu­lagðrar brota­starf­semi við rekstur lög­mætra fyr­ir­tækja birt­ist með sífellt ljós­ari hætti. Ávinn­ingur brota­starf­semi er fal­inn með því að þvætta hann í gegnum rekstur fyr­ir­tækja. Þá er það mat lög­reglu að skattaund­an­skot geti tengst svartri atvinnu­starf­semi, félags­legum und­ir­boðum og bóta­svik­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent