Þórólfur með jóla- og áramóta minnisblað í smíðum

Kúrfan margumtalaða er ekki á þeirri niðurleið sem vonast var eftir með hertum innanlandsaðgerðum. Ef eitthvað er virðist hún á uppleið. Sóttvarnalæknir er að skrifa nýtt minnisblað. Í því verða tillögur að aðgerðum sem við þurfum að sæta yfir hátíðirnar.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Auglýsing

„Minn­is­blað fer frá mér til ráð­herra á næstu dög­um,“ segir Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um hvenær ljóst verður hvaða inn­an­lands­að­gerðir munu gilda yfir jól og ára­mót. Þórólfur heldur oft­ast spil­unum þétt að sér þegar minn­is­blöðin eru í smíð­um. Á því hefur engin breyt­ing orðið miðað við stutt og laggott svar hans til Kjarn­ans.

Núver­andi reglu­gerð um tak­mark­anir á sam­komum fólks vegna far­sóttar tóku gildi 12. nóv­em­ber og gilda til 22. des­em­ber. Sam­kvæmt þeim mega 50 manns koma saman í sama rými en heim­ilt er að hafa allt að 500 manns í rými á við­burðum gegn því að fólk fram­vísi nei­kvæðu hrað­prófi og að 1 metra nálægð­ar­mörk séu tryggð. Ef það er ekki hægt skal fólk bera grímu fyrir vit­um.

Eins metra nálægð­ar­reglan er svo almenn, t.d. á vinnu­stöðum og í annarri starf­semi, eins og segir í regl­un­um. Það sama á við um grímu­skyldu. Hana skal virða þar sem ekki er unnt að tryggja eins metra bil milli ótengdra ein­stak­linga.

Auglýsing

Þegar þessar hertu tak­mark­anir voru settar á voru að grein­ast um 200 smit á dag. Þrýst­ingur var á þjón­ustu Land­spít­ala og þar sem alvar­leg veik­indi og sjúkra­húsinn­lagnir vegna COVID-19 koma í ljóst 1-2 vikum eftir að smit ná hámarki, voru engir sénsar teknir og tak­mark­anir hertar til að draga úr líkum á slíkri þró­un.

Eftir að regl­urnar voru settar hefur svo nýtt afbrigði veirunn­ar, ómíkron, skotið upp koll­in­um. Það virð­ist meira smit­andi en delta-af­brigðið en að sama skapi eru vís­bend­ingar um að það valdi ekki jafn alvar­legum veik­indum þótt enn eigi margt í því sam­bandi eftir að skýr­ast.

Upp, upp

Víða í lönd­unum í kringum okkur hafa aðgerðir verið hertar umtals­vert. Þannig er því t.d. farið í Dan­mörku og Nor­egi. Smit­tölur rísa þar hátt sem og í flestum Evr­ópu­ríkj­um. Hættan sem sótt­varna­læknar vara við er sú að þótt ómíkrón valdi mild­ari ein­kennum hjá flestum gæti smit­fjöld­inn, yrði hann gríð­ar­leg­ur, engu að síður aukið álagið á heil­brigð­is­kerf­ið.

Svo virt­ist um tíma sem að hinar hertu aðgerðir hér væru að skila þeim árangri að nið­ur­sveifla væri í smit­töl­un­um. En síð­ustu daga hefur smitum fjölgað dag frá degi á ný.

Frá 1. júlí hafa 232 þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús vegna COVID-19. 41 hefur þurft á gjör­gæslu­með­ferð að halda. Af þeim sem greinst hafa með sjúk­dóm­inn hér á landi hafa 36 lát­ist frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Tveir á gjör­gæslu

Í dag liggja ell­efu á sjúkra­húsi vegna COVID og tveir eru á gjör­gæslu og báðir eru í önd­un­ar­vél. Með­al­aldur inniliggj­andi COVID-­sjúkra á Lan­spít­al­anum er 75 ár. Meira en þriðj­ungur þeirra sem eru í ein­angrun í augna­blik­inu og í þjón­ustu hjá COVID-­göngu­deild­inni eru börn. Það er mik­ill munur frá því í fyrri bylgjum far­ald­urs­ins.

Heil níu­tíu pró­sent lands­manna, 12 ára og eldri, eru full­bólu­sett. Það er með hæsta hlut­falli þjóðar sem þekk­ist í heim­in­um. Tæp­lega 150 þús­und hafa að auki þegið örv­un­ar­bólu­setn­ingu. Bólu­setn­ing barna á aldr­inum 5-11 ára hefur verið boðuð í byrjun næsta árs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent