Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir frá því í dag að starfsfólk flugfélagsins Play hafi undanfarnar vikur og mánuði ítrekað sent henni óskir um liðsinni og ábendingar um „slæman aðbúnað“ hjá flugfélaginu. Í pistli sem hún birtir á vef ASÍ segir að henni hafi borist nafnlaus bréf frá fólki sem óttist afleiðingar af því að koma fram undir nafni.
„Starfsfólkið er í erfiðri stöðu, það vill vinna við flug og hefur metnað fyrir því að nýtt flugfélag geti starfað á íslenskum markaði. En það vill líka sanngjörn kjör og að stéttarfélagið starfi að hagsmunum starfsfólksins, ekki atvinnurekendanna,“ skrifar Drífa.
Hún segir að auki að framganga Play sé flugfélaginu „til skammar“ og að á meðan ekki sé tekið á henni grafi það undan öllum vinnumarkaðnum og sé ógn við réttindi launafólks almennt. Hún segir einnig að stéttarfélag starfsmanna Play, flugstéttarfélagið ÍFF, sé ekki „raunverulegt stéttarfélag.“
Drífa segir í pistli sínum að þegar hún byrjaði að vinna fyrir verkalýðshreyfinguna hefði hún varla trúað því að á íslenskum vinnumarkaði „væru hópar sem væri búið að svipta rödd sinni, þyrðu ekki að koma fram og greina frá aðstæðum sínum og væru kúgaðir til að vinna fyrir laun undir lágmarkslaunum.“
„Síðan er ég reynslunni ríkari og hef ítrekað hitt fólk sem hefur ekki rödd og eina vonin er að stéttarfélögin leggi lið og ljái rödd og styrk, sem þau gera daglega,“ skrifar Drífa.
Hún segir að hins vegar taki steininn úr „þegar heilt flugfélag er byggt á grunni kjara undir lágmarkslaunum og býður ódýr fargjöld á grunni þess að hafa „ódýrara starfsfólk“.
„Þessi saga Play hefur verið rakin áður og miðstjórn ASÍ og formannafundur ályktað og hvatt til sniðgöngu á félaginu þar til það gerir réttmætan kjarasamning. Hið svokallaða stéttarfélag sem samið var við er ekki raunverulegt stéttarfélag, fólkið sem vinna átti eftir samningunum tók ekki þátt í gerð þeirra og félagið, ÍFF, er ekki sjálfstætt frá atvinnurekandanum. Tilraunir hafa verið gerðar til að ná alvöru kjarasamningum við Play og þeim gefinn kostur á að ganga til samninga við félag sem raunverulega er skilgreint sem félag flugfreyja, hefur reynslu af kjarasamningum og hefur sýnt það að það standi við bakið á sínum félagsmönnum þegar í harðbakkann slær. Play hefur því miður ekki gripið slíkt tækifæri,“ segir Drífa í pistli sínum.