Svikapóstur í nafni forseta Íslands hefur verið í drefingu síðan fyrir jól. Svo virðist sem um eins konar stafrófshappadrætti sé að ræða þar sem „forsetinn“ segist hafa valið 200 manns af handahófi og fer það eftir upphafsstaf hversu háa upphæð viðkomandi fær, allt frá 50-90 þúsund krónum. Mynd af forsetahjónunum, Guðna Th. Jóhannessyni og Elizu Reid, fylgir færslunni auk mynda af árituðum umslögum og peningaseðlum.
Una Sighvatsdóttir, sérfræðingur hjá embætti forseta Íslands, segir svikasíður sem þessar skjóta öðru hverju upp kollinum. „Okkur er kunnugt um þessa tilteknu síðu og var lögreglu gert viðvart um hana fyrir jól,“ segir hún.
Þetta er ekki fyrsta dæmið þar sem settar eru upp síður á samfélagsmiðlum í nafni forseta Íslands en allar síðurnar hafa verið tilkynntar til lögreglu að sögn Unu. Hópurinn þar sem nýjasti svikapósturinn birtist, sem gengur undir heitinu „Stéttabaráttan“, hefur oftar en einu sinni verið tilkynntur til lögreglu. „En því miður án árangurs enn sem komið er,“ segir Una.
Hópurinn er með fáa fylgjendur og færslurnar fá yfirleitt lítil viðbrögð. Una segir að engu að síður sé mikilvægt að fólk hafi varann á þar sem alltaf sé hugsanlegt að einhver láti blekkjast. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur vakið athygli á svikasíðum sem þessum og í hafa varað við nýrri hrinu af svokölluðum vefveiðum (e. phising). Lögreglan beinir því til fólks sem fær svindlpósta eða er í vafa að hafa samband með tölvupósti, abendingar@lrh.is eða cybercrime@lrh.is. „Ef þið eruð í vafa, spyrjið okkur,“ segir í Facebook-færslu lögreglunnar frá því í desember.
VEFVEIÐAR - PHISHING Nú gengur yfir ný hrina af vefveiðum. Áþekk þeirri sem við höfum séð áður í nafni póstsins, DHL og...
Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Tuesday, December 7, 2021