Forseti Íslands ítrekað notaður í svikapóstum

Facebook-aðgangur í nafni Guðna Th. Jóhannesssonar, forseta Íslands, hefur ítrekað birst á fréttaveitum notenda. Forsetaembættið hefur gert lögreglu viðvart en færslurnar birtast alltaf aftur.

Svikapóstur í nafni forseta Íslands dúkkar reglulega upp á Facebook.
Svikapóstur í nafni forseta Íslands dúkkar reglulega upp á Facebook.
Auglýsing

Svika­póstur í nafni for­seta Íslands hefur verið í dref­ingu síðan fyrir jól. Svo virð­ist sem um eins konar staf­rófs­happa­drætti sé að ræða þar sem „for­set­inn“ seg­ist hafa valið 200 manns af handa­hófi og fer það eftir upp­hafs­staf hversu háa upp­hæð við­kom­andi fær, allt frá 50-90 þús­und krón­um. Mynd af for­seta­hjón­un­um, Guðna Th. Jóhann­essyni og Elizu Reid, fylgir færsl­unni auk mynda af árit­uðum umslögum og pen­inga­seðl­um.

Una Sig­hvats­dótt­ir, sér­fræð­ingur hjá emb­ætti for­seta Íslands, segir svika­síður sem þessar skjóta öðru hverju upp koll­in­um. „Okkur er kunn­ugt um þessa til­teknu síðu og var lög­reglu gert við­vart um hana fyrir jól,“ segir hún.

Auglýsing

Þetta er ekki fyrsta dæmið þar sem settar eru upp síður á sam­fé­lags­miðlum í nafni for­seta Íslands en allar síð­urnar hafa verið til­kynntar til lög­reglu að sögn Unu. Hóp­ur­inn þar sem nýjasti svika­póst­ur­inn birtist, sem gengur undir heit­inu „Stétta­bar­áttan“, hefur oftar en einu sinni verið til­kynntur til lög­reglu. „En því miður án árang­urs enn sem komið er,“ segir Una.

Hóp­ur­inn er með fáa fylgj­endur og færsl­urnar fá yfir­leitt lítil við­brögð. Una segir að engu að síður sé mik­il­vægt að fólk hafi var­ann á þar sem alltaf sé hugs­an­legt að ein­hver láti blekkj­ast. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur vakið athygli á svika­síðum sem þessum og í hafa varað við nýrri hrinu af svoköll­uðum vef­veiðum (e. phising). Lög­reglan beinir því til fólks sem fær svindl­pósta eða er í vafa að hafa sam­band með tölvu­pósti, abend­ing­ar@l­r­h.is eða cybercri­me@l­r­h.­is. „Ef þið eruð í vafa, spyrjið okk­ur,“ segir í Face­book-­færslu lög­regl­unnar frá því í des­em­ber.

VEF­VEIÐAR - PHISHING Nú gengur yfir ný hrina af vef­veið­um. Áþekk þeirri sem við höfum séð áður í nafni pósts­ins, DHL og...

Posted by Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu on Tues­day, Decem­ber 7, 2021

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent