Framsókn og Píratar bæta við sig í nýrri könnun MMR – Vinstri græn dala mest

Fylgi Vinstri grænna mældist þremur prósentustigum lægra en síðast í nýrri könnun MMR. Á sama tíma bæta Framsókn og Píratar við sig tæpum þremur prósentustigum hvor flokkur. Píratar mælast næststærsti á eftir Sjálfstæðisflokki, sem er nærri kjörfylgi.

MMR segir að fleiri baráttulínur séu að teiknast upp á milli flokka en bara sú sem fyrirtækið hefur vakið máls á að séu greinilegar á milli Sjálfstæðisflokks og Miðflokks.
MMR segir að fleiri baráttulínur séu að teiknast upp á milli flokka en bara sú sem fyrirtækið hefur vakið máls á að séu greinilegar á milli Sjálfstæðisflokks og Miðflokks.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nærri kjör­fylgi sínu í nýrri skoð­ana­könnun frá MMR, en flokk­ur­inn mæld­ist með 24,6 pró­sent fylgi. Þar á eftir koma Píratar með 13,5 pró­sent og Fram­sókn með 12,5 pró­sent fylgi. Báðir flokkar bæta við sig í þess­ari nýju könn­un, Píratar 2,5 pró­sentu­stigum og Fram­sókn 2,9 pró­sentu­stig­um.

Svip­aða sögu er að segja af Við­reisn, sem mælist nú með 11 pró­sent fylgi og bætir við sig rúmu pró­sentu­stigi frá síð­ustu könnun MMR. Vinstri græn dala hins vegar mest og mæl­ast nú með 11,1 pró­sent fylgi, sléttum 3 pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu könnun MMR.

Fylgi Sam­fylk­ingar dalar einnig um rúmt pró­sentu­stig og mælist nú 10,9 pró­sent. Fylgi Mið­flokks­ins minnkar sömu­leiðis um rúmt pró­sentu­stig á milli kann­ana og mæld­ist nú 6,5 pró­sent.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með 5,6 pró­sent, sem er rúmu pró­sentu­stigi minna en í síð­ustu könnun MMR og Flokkur fólks­ins mælist með 2,8 pró­sent fylgi, eftir að hafa mælst með 4,2 pró­sent í síð­ustu könn­un. 1,6 pró­sent aðspurðra segja að þeir myndu að kjósa ein­hverjar aðrar stjórn­mála­hreyf­ing­ar.

MMR segir í umfjöllun um nið­ur­stöð­urnar á vef sínum að þegar gögnin séu skoðuð aftur í tím­ann sé ljóst að nokk­urs titr­ings gæti í fylgi flokk­anna. „Þessar sveiflur eru eðli­legar og til marks um þau áhrif sem stjórn­mála­um­ræðan hefur á þeim tíma­punkti þegar við­kom­andi könnun er tek­in,“ segir á vef MMR.

Niðurstöður nýrrar könnunar MMR.





Skoð­ana­kann­anir fyr­ir­tæk­is­ins eru ólíkar þjóð­ar­púlsi Gallup, sem Kjarn­inn birti ítar­lega umfjöllun um fyrr í dag, meðal ann­ars að því leyti að kann­anir MMR eru fram­kvæmdar á skemmra tíma­bili og mæla þannig skarp­ari sveiflur í fylgi en Þjóð­ar­púlsinn, sem er fram­kvæmdur yfir mán­að­ar­langt tíma­bil.

Þessi könnun MMR var fram­kvæmd dag­ana 25. maí til 1. júní 2021.

Fleiri bar­áttu­línur að koma í ljós

MMR leggst í nokkra grein­ingu á töl­unum og segir í umfjöllun sinni að sveifl­urnar í fylgi flokk­anna sýni okkur á milli hvaða flokka bar­áttan standi.

Auglýsing

„MMR hefur áður gert að umfjöll­un­ar­efni hve stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn sveifl­ast í gagn­stæða átt við fylgi Mið­flokks­ins sem hefur þótt til marks nokkra bar­áttu milli flokk­anna um hilli sömu kjós­end­anna. Það sem hefur gerst frá ára­mótum er að slíkar bar­áttu­línur hafa komið í ljós milli fleiri flokka og má í dag, til við­bótar við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk, sjá nei­kvæða fylgni (r = -0,75 eða sterk­ari) milli Vinstri grænna og Pírata, Sam­fylk­ingar og Sós­í­alista auk Við­reisnar og Flokks fólks­ins,“ segir í umfjöllun MMR.

Þau orð fylgja að nú þegar hylli undir lok COVID-bar­átt­unnar og athygli stjórn­mála­manna bein­ist í auknum mæli að hefð­bundnum stjórn­mál­um, séu línur teknar að skerp­ast um hvaða flokka þeir muni velja á milli í kom­andi kosn­ing­um.

Könnun MMR var sem áður segir fram­kvæmd dag­ana 25.-1. júní 2021. Þátt­tak­endur voru ein­stak­lingar 18 ára og eldri sem valdir voru handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR, en álits­gjafar MMR eru valdir úr Þjóð­skrá þannig að þeir end­ur­spegli lýð­fræði­lega sam­setn­ingu þjóð­ar­innar á hverjum tíma. Um net­könnun var að ræða og voru svör 951 tals­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent