Framsókn, Samfylking og Píratar nánast jafnstór í nýrri könnun

Stjórnarflokkarnir þrír hafa samtals tapað 8,5 prósentustigum af fylgi á kjörtímabilinu og njóta stuðnings minnihluta þjóðarinnar. Samfylkingin, Píratar og Viðreisn mælast með 11,7 prósentustigum meira en þeir fengu í síðustu kosningum.

Fylgi Samfylkingarinnar hefur ekki mælst meira síðan í janúar 2021. Kristrún Frostadóttir sækist eftir því að verða næsti formaður flokksins.
Fylgi Samfylkingarinnar hefur ekki mælst meira síðan í janúar 2021. Kristrún Frostadóttir sækist eftir því að verða næsti formaður flokksins.
Auglýsing

Sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er nán­ast það sama nú og það var fyrir mán­uði, eða 45,8 pró­sent, sam­kvæmt nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins með 21,8 pró­sent fylgi, sem er 2,6 pró­sentu­stigi minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ing­um. 

Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn mælist með 15,6 pró­­sent fylgi, sem er aðeins meira en fyrir mán­uði, en með því minnsta sem hann hefur mælst með í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins síðan fyrir kosn­­ing­­arnar í fyrra­haust. Flokk­­ur­inn er sem stendur 2,1 pró­­sent­u­­stigi undir kjör­­fylg­i. 

Vinstri græn eru að venju með minnst fylgi stjórn­ar­flokk­anna og mæl­­ast með 8,4 pró­­sent stuðn­­ing. Flokk­­ur­inn mæld­ist með 7,2 pró­­sent í júní sem var lægsta fylgi sem hann hafði nokkru sinni mælst með í könnun Gallup. Vinstri græn eru enn tölu­vert frá kjör­­fylgi, sem var 12,6 pró­­sent. Eng­inn flokkur á þingi hefur tapað jafn miklu fylgi það sem af er kjör­­tíma­bil­i. 

Auglýsing

Allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa því tapað fylgi á kjör­tíma­bil­inu og sam­tals mæl­ast þeir nú með 8,5 pró­sentu­stigum minna fylgi en þeir fengu þegar talið var upp úr kjör­köss­unum í sept­­em­ber í fyrra. 

Sam­fylk­ingin ekki stærri í lengri tíma

Sam­fylk­ingin mælist nú þriðji stærstu flokkur lands­ins, með nán­ast sama fylgi og sá næst stærsti, Fram­sókn, eða 15,5 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn hefur ekki mælst stærri síðan í jan­úar 2021. Sam­fylk­ingin mun kjósa nýjan for­mann í októ­ber og í síð­asta mán­uði til­kynnti Kristrún Frosta­dóttir að hún sæk­ist eftir því emb­ætti. Eng­inn annar hefur lýst yfir fram­boð­i. 

Auglýsing
Píratar eru litlu minni með 14,8 pró­sent fylgi, sem er nán­ast það sama og í síð­asta mán­uði. Við­reisn mælist svo með 8,4 pró­sent og stendur líka nokkurn veg­inn í stað milli mán­aða. 

Sam­an­lagt mælist fylgi þess­­ara þriggja flokka 38,7 pró­­sent, eða 11,7 pró­­sent­u­­stigum meira en þeir fengu síð­­­ast þegar var kos­ið. Í ljósi þess að fylg­is­aukn­ing Pírata, Sam­­fylk­ingar og Við­reisnar er meiri en fylg­is­tap stjórn­­­ar­­flokk­anna, sem er 8,5 pró­­sent, er ljóst að þeir hafa sótt fylgi til ann­­arra stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­flokka að auki. 

Sós­í­alistar yfir fimm pró­sentum annan mán­uð­inn í röð

Flokkur fólks­ins mælist nú með 5,6 pró­­sent fylgi, sem er einu pró­sentu­stigi minna en  fyrir mán­uði og tölu­vert undir þeim 8,8 pró­­sent­u­­stigum sem flokk­­ur­inn fékk í síð­­­ustu kosn­­ing­­um. Mið­­flokk­­ur­inn hefur ekki mælst með yfir fimm pró­­sent fylgi það sem af er kjör­­tíma­bili og það varð engin breyt­ing þar á í síð­­asta mán­uði. Þá sögð­ust alls 4,6 pró­­sent styðja flokk­inn sem er tæpu pró­sentu­stigi undir kjör­­fylg­i. 

Sós­í­a­lista­­flokkur Íslands bauð fram til þings í fyrsta sinn haustið 2021, en náði ekki inn. Hann fékk 4,1 pró­­sent atkvæða. Fram að júlí­mán­uði hafði flokk­­ur­inn ein­ungis einu sinni mælst með meira en fimm pró­­sent fylgi en hann bætir ágæt­­lega við sig þá og mæld­ist með 5,3 pró­­sent. Flokk­ur­inn er á svip­uðum slóðum nú með 5,1 pró­sent fylgi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent