Friðrik Jónsson hefur verið kjörinn nýr formaður Bandalags háskólamanna (BHM) til tveggja ára í rafrænni kosningu sem lauk á hádegi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BHM.
Friðrik hlaut 69,5 prósent atkvæða í kosningunni en Maríanna H. Helgadóttir, formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga, sem einnig bauð sig fram í embættið, hlaut 30,5 prósent atkvæða. Rafræn kosning hófst 13. maí og lauk sem fyrr segir á hádegi í dag. Samtals voru 189 aðalfundarfulltrúar á kjörskrá og af þeim greiddu 187 atkvæði í kosningunni. Kosningaþátttaka var því um 99 prósent.
Tekur hann við sem formaður BHM á aðalfundi bandalagsins næstkomandi fimmtudag, að því er fram kemur í tillkynningunni. Friðrik er einnig formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins.
„Friðrik Jónsson er fæddur árið 1967 og hefur undanfarin 25 ár starfað innan utanríkisþjónustu Íslands. Meðal annars hefur hann starfað á vettvangi Alþjóðabankans, Atlantshafsbandalagsins og Sameinuðu þjóðanna og í sendiráðum Íslands í Washington og Kaupmannahöfn. Hann hefur einnig verið forstöðumaður GRÓ, þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, og fulltrúi Íslands í embættismannanefnd Norðurskautsráðsins. Friðrik er með MA-gráðu í alþjóðasamskiptum og MBA-gráðu í alþjóðaviðskiptum. Hann var kjörinn formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins á aðalfundi félagsins síðastliðið haust,“ segir í tilkynningunni.