Fylgið stöðugt átta dögum fyrir kosningar

kosningaspa.jpg
Auglýsing

Könnun Capacent Gallup stað­festir þær fylg­is­sveiflur sem urðu í Kosn­inga­spá Kjarn­ans og Bald­urs Héð­ins­sonar stærð­fræð­ings fyrr í vik­unn­i. RÚV greindi frá Þjóð­ar­púlsi Gallup í fréttum sínum í gær­kvöldi og var könn­unin vegin inn í Kosn­inga­spána í morg­un. Nið­ur­staða Þjóð­ar­púls­ins er nánást sú sama og útkoman í Kosn­inga­spánni 20. maí. Sam­fylk­ingin er enn stærst, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn virð­ist fast­ur undir 25 ­pró­sentum og Björt fram­tíð fylgir fast á eft­ir.

Könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar HÍ síðan 15. maí, sem sýndi gríð­ar­legar fylg­is­sveiflur á þremur stærstu fram­boð­unum virð­ist því hafa verið frá­vik og ekki sýna rétta mynd af þýð­inu. Þar mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með aðeins 21,5 pró­sent fylgi og þrjá full­trúa, Sam­fylk­ingin mun stærri og Björt fram­tíð með 22,2 pró­sent. Kosn­inga­spáin sann­aði gildi sitt þar sem áhrif könn­unnar Félaga­s­vís­inda­stofn­unnar voru vegin og nið­ur­stöð­urnar því ekki eins dramat­ísk­ar.

Þróun á fylgi flokka í Reykja­vík



Kosn­inga­spá keyrð á tíma­bil­inu 26. febr­úar til 20. maí 2014.

[visu­alizer id="4616"]

Auglýsing

Engar breyt­ingar verða á fjölda ­full­trúa með Þjóð­ar­púlsi Gallup. Sam­fylk­ingin er enn með fimm full­trúa, Sjálf­stæð­is­flokkur með fjóra eins og Björt fram­tíð. Fram­boð Pírata og Vinstri grænna fá einn full­trúa hvort.

Skipt­ing sæta er almennt mjög stöðug milli kann­anna nema á sætum 15 til 20. Nú ­mætti nán­ast kasta upp á það hvort fimmt­ánda ­sætið falli með fjórða manni á lista Bjartrar fram­tíðar eða sjötta manni Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Hvorn veg­inn sem það færi héldi meiri­hlut­inn með níu full­trúum af þeim 15 sem kjörnir eru. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er eins og stendur nokkuð öruggur með fjóra full­trúa kjörna.

Fjöldi kjör­inna full­trúa



[visu­alizer id="4611"]

Tvær nýj­ustu kann­an­irnar (FHÍ 20. maí og Þjóð­ar­púls­inn 22. maí) vega um 80 pró­sent í Kosn­inga­spánni en eldri kann­anir hanga enn inni með um það bil sjö pró­sent vægi. Ný könnun frá Frétta­blað­inu gæti dreift áhrif­unum meira og gert spánna betri. Best er að geta þess að könnun Capacent Gallup var gerð á dög­unum 7. til 21. maí.

 

Bætt við 23. maí klukkan 14:26:

Nið­ur­stöð­urnar slá­andi



Viktor Orri Val­garðs­son, verk­efna­stjóri hjá Félags­vís­inda­stofn­un, segir að nið­ur­stöður könn­unar þeirra sem birt­ist í Morg­un­blað­inu 20. maí hafi vissu­lega verið nokkuð slá­andi en þó í ágætu sam­ræmi við þá þróun á fylgi flokk­anna sem virt­ist hafa átt sér stað. Könnun Þjóð­ar­púls Gallup sem RÚV greindi frá í gær hafi verið innan vik­marka könn­unar Félags­vís­inda­stofn­unn­ar.

„Þetta getur líka skýrst af því að könnun þeirra var fram­kvæmd yfir lengra tíma­bil, lauk síðar og með stærra úrtaki heldur en okk­ar,“ segir Viktor Orri þegar eftir skýr­ingum á mun­inum á síð­ustu tveimur könnum var leit­að. „Það má sumsé vel vera að þeirra könnun (Þjóð­ar­púls Gallup) gefi rétt­ari mynd af stöð­unni í dag en það þýðir alls ekki að okkar könnun hafi gefið ranga mynd af þýð­inu á sínum tíma.“

Félags­vís­inda­stofnun úti­lokar þó ekki að fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hafi verið ofmetið í könn­un­inni 20. maí, þó merki um það finn­ist ekki þegar mis­mun­andi svar­leiðir (síma- og netsvör) séu bornar sam­an.

Ný könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar á fylgi fram­boð­anna í Reykja­vík er vænt­an­leg í næstu viku. Kosn­ingar fara fram laug­ar­dag­inn 31. maí.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None