Fylgistap ríkisstjórnarflokkanna minna en nær allra annarra stjórna eftir bankahrun

Einungis ein ríkisstjórn sem setið hefur frá 2009 hefur mælst með meira fylgi tíu mánuðum eftir að hún tók við völdum en hún fékk í kosningunum sem færði henni þau völd. Sú ríkisstjórn beið afhroð í kosningum rúmum þremur árum síðar.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur nóvember 2021
Auglýsing

Sitj­andi rík­is­stjórn­ar­flokkar hafa sam­eig­in­lega dalað minna í fylgi á fyrstu tíu mán­uð­unum eftir kosn­ingar en þær rík­is­stjórnir sem mynd­aðar voru eftir kosn­ing­arnar 2013, 2016 og 2017. Sam­eig­in­legt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna mæld­ist 46,1 pró­sent í nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup,, eða 8,2 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi, og hafa allir flokk­arnir þrír tapað fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­inu.

Þegar sömu flokkar mynd­uðu rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar 2017 hröp­uðu vin­sældir þeirra hraðar en þær hafa gert nú. Þá fengu þeir minna sam­eig­in­legt fylgi í kosn­ing­unum sjálfum en fjórum árum síð­ar, alls 52,8 pró­sent, og höfðu misst 10,2 pró­sentu­stig tíu mán­uðum síð­ar. Fylgið náði aftur flugi eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á og hlut­verk rík­is­stjórn­ar­innar breytt­ist umtals­vert, í það að bregð­ast að stóru leyti við afleið­ingum hans, jafnt heil­brigð­is­lega og efna­hags­lega. 

Fjar­aði fljótt undan Panama­stjórn­inni

Eina rík­is­stjórnin eftir banka­hrun sem hefur mælst með meira fylgi tíu mán­uðum eftir kosn­ingar er fyrsta hreina vinstri­st­jórn­in, skipuð Sam­fylk­ingu og Vinstri græn­um, sem mæld­ist með 55,2 pró­sent sam­eig­in­legt fylgi í febr­úar 2010, eða 3,7 pró­sentu­stigum meira en hún fékk í kosn­ing­unum í apríl árið áður. Það fjar­aði þó hratt undan þeim stuðn­ingi á næstu árum og þegar kosið var 2013, eftir að rík­is­stjórnin náði að klára kjör­tíma­bilið sem minni­hluta­stjórn, fengu stjórn­ar­flokk­arn­ir  ein­ungis 23,8 pró­sent atkvæða. Um for­dæma­laust fylgis­tap var að ræða. 

Auglýsing
Sú sem tók við af henni, rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks undir for­sæti Sig­mundar Daviðs Gunn­laugs­son­ar, fékk 51,1 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum sem fram fóru í apríl 2013. Tíu mán­uðum síðar hafði fylgi þeirra hrunið niður í 40 pró­sent. Sú rík­is­stjórn náði ekki að sitja út kjör­tíma­bilið heldur hrökkl­að­ist frá haustið 2016 í snemm­búnum kosn­ingum sem boðað var til eftir opin­berum Panama­skjal­anna. 

Óvin­sælasta rík­is­stjórn seinni tíma

Eftir lang­vinna stjórn­ar­kreppu, þar sem afar illa gekk að mynda rík­is­stjórn, tók stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíð­ar, undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­son­ar, við stjórn­ar­taumunum snemma árs 2017, en kosið hafði verið í lok októ­ber árið áður. Flokk­arnir þrír voru ekki með meiri­hluta atkvæða á bak­við sig – fengu 47,7 pró­sent þeirra – en fengu samt sem áður 32 af 63 þing­mönnum kjörna, sem dug­aði til minnsta mögu­lega meiri­hluta í þing­inu. Tíu mán­uðum eftir að stjórnin tók við mæld­ist sam­eig­in­legt fylgi þeirra flokka sem að henni stóðu 34 pró­sent, eða 13,7 pró­sentu­stigum minna en þeir höfðu fengið í kosn­ing­unum haustið 2016. Örfáum vikum síð­ar, um miðjan sept­em­ber 2017, sprakk rík­is­stjórnin og boðað var til nýrra kosn­inga. 

Eftir þær var mynduð rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur sem inni­hélt Vinstri græna, Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn og hefur hún setið síð­an. Flokk­arnir end­ur­nýj­uðu sam­starf sitt í fyrra eftir að hafa bætt sam­eig­in­lega við sig fylgi milli kosn­inga, sem var ein­vörð­ungu til­komið vegna fylg­is­aukn­ingar Fram­sókn­ar­flokks­ins. Bæði Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokkur töp­uðu fylg­i. 

Fram­sókn tvö­föld, Sjálf­stæð­is­flokkur á pari en Vinstri græn dala

Í nýj­ustu fylgiskönnun Gallup, sem birt var í síð­ustu viku, kom fram að allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafi tapað fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­inu.

­Mestu hafa Vinstri græn tapað og fylgi flokks­ins hefur und­an­farna mán­uði mælst með því lægsta sem það hefur mælst frá því að Gallup fór að mæla það. Botn­inum var náð í júní þegar fylgið mæld­ist 7,2 pró­sent, og hafði aldrei mælst minna. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað rúmum tveimur pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum og Fram­sókn tæpum tveimur pró­sentu­stig­um. 

Ef horft er á þróun á fylgi flokk­anna tíu mán­uðum eftir að þeir mynd­uðu fyrst rík­is­stjórn í kjöl­far kosn­ing­anna 2017 þá hefur staða tveggja þeirra breyst umtals­vert. Á þeim tíma, í ágúst 2018, mæld­ist fylgi Sjálf­stæð­is­flokks svipað og það er í dag, eða 22,7 pró­sent. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist hins vegar næstum tvisvar sinnum stærri nú en þá, fer úr 8,3 í 15,4 pró­sent. Vinstri græn eru hins vegar með umtals­vert lægra fylgi í dag en fyrir fjórum árum þegar flokk­ur­inn mæld­ist með 11,7 pró­sent. Í nýjasta Þjóð­ar­púls­inum mæld­ist fylgið 8,6 pró­sent. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent