Fyrrum framkvæmdastjóri áhættustýringar Landsbankans nýr framkvæmdastjóri Eflingar

Veigamikil verkefni bíða nýs framkvæmdastjóra Eflingar, Perlu Aspar Ásgeirsdóttur. Þar ber hæst stefnumótun og eftirfylgni í tengslum við skipulagsbreytingar á skrifstofu Eflingar.

Perla Ösp, nýr framkvæmdastjóri Eflingar, hefur lengi starfað í fjármálageiranum
Perla Ösp, nýr framkvæmdastjóri Eflingar, hefur lengi starfað í fjármálageiranum
Auglýsing

Perla Ösp Ásgeirs­dóttir hefur verið ráðin í starf fram­kvæmda­stjóra Efl­ing­ar. Hún mun hefja störf þann 1. júní. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Efl­ingu.

Áður starf­aði Perla í 11 ár sem fram­kvæmda­stjóri áhættu­stýr­ingar hjá Lands­bank­anum en hún er með með B.Sc. gráðu í við­skipta­fræði og M.Sc. gráðu í fjár­málum frá Háskól­anum í Reykja­vík. Þar áður starf­aði hún sem grein­andi hjá Seðla­bank­anum og gegndi sam­hliða störfum fyrir RAnn­sókn­ar­nefnd Alþingis sem rann­sak­aði orsakir fjár­mála­hruns­ins 2008.

Perlu bíða ýmis verk­efni á skrif­stofu Efl­ing­ar. „Þar ber fyrst að nefna stefnu­mótun og eft­ir­fylgni í tengslum við skipu­lags­breyt­ingar sem Efl­ing hóf í apríl síð­ast­liðn­um,“ segir í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu.

Auglýsing

„Ég lýsi mik­illi ánægju með þessa ráðn­ingu. Við leit­uðum að fram­kvæmda­stjóra sem getur ábyrgst góða stjórn­ar­hætti, leitt vand­aða áætl­un­ar­gerð um rekst­ur­inn og átt gott sam­starf við stjórn og starfs­menn. Það er ljóst að Perla Ösp hefur afburða færni og reynslu í þessum atrið­u­m,“ er haft eftir Sól­veigu Önnu Jóns­dóttur í til­kynn­ingu Efl­ing­ar.

„Ég þakka það traust sem mér er sýnt gagn­vart því mik­il­væga verk­efni að taka við skrif­stofu Efl­ingar - stétt­ar­fé­lags eftir róst­ur­sama tíma. Það eru mörg verðug verk­efni sem bíða mín og þess teymis sem mun manna skrif­stof­una. Ég treysti því að þekk­ing mín og reynsla frá Lands­bank­anum muni styrkja Efl­ingu og hlakka til far­sælla sam­skipta við stjórn og sam­starfs­fólk,“ segir Perla Ösp.

Í apríl var öllum starfs­mönnum á skrif­stofu Efl­ingar sagt upp störfum eftir að meiri­hluti stjórnar félags­ins undir for­ystu for­manns­ins Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur hafði sam­þykkt að segja upp öllum ráðn­ing­ar­samn­ing­um. Sól­veig Anna sagði af sér for­mennsku síð­asta haust en bauð sig aftur fram til for­ystu fyrir for­manns- og stjórn­ar­kosn­ingar sem fram fóru í febr­ú­ar. Hún leiddi þá Bar­áttu­list­ann sem hlaut 54 pró­sent greiddra atkvæða. Sól­veig Anna tók svo aftur við for­mennsku Efl­ingar á aðal­fundi félags­ins í byrjun Apr­íl.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent