Gagnrýnir aðstöðuleysi fyrir ungmenni í Laugardalnum

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að ungmenni í Laugardal þurfi alvöru aðstöðu til íþróttaiðkunar „ekki fleiri vinnuhópa eða góðar hugmyndir á blaði“.

7DM_9547_raw_2110.JPG
Auglýsing

Katrín Atla­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins telur að ung­menni í Laug­ar­dal þurfi „al­vöru aðstöðu, ekki fleiri vinnu­hópa eða góðar hug­myndir á blaði“ en þetta ritar hún í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag.

Bendir hún á að í meiri­hluta­sátt­mála borg­ar­stjórnar sé talað um að „greina þurfi þörf fyrir aðstöðu fyrir börn og ung­linga í Laug­ar­dal“. Katrín segir að það þurfti enga sér­fræð­inga til að greina þessa þörf, það væri auð­velt að spyrja bara for­eldra í hverf­inu.

„Tveir grunn­skólar í Laug­ar­dal eru án íþrótta­húss og aðrir tveir eru með of lítil og óheppi­leg hús. Íþrótta­fé­lögin í Laug­ar­dal, Ármann og Þrótt­ur, eiga ekk­ert hús fyrir bolta­greinar inn­an­húss. Hjá Ármanni, fjöl­menn­ustu körfu­bolta­deild Reykja­vík­ur, æfa fjög­ur­hund­ruð börn. Þau yngstu æfa í íþrótta­húsum Lang­holts- og Laug­ar­nes­skóla, þau eru á stærð við einn bad­mint­on­völl. Þessi börn spila mörg í fyrsta skipti á tvær körfur þegar þau taka þátt í mót­u­m“, skrifar hún.

Auglýsing

Segir brott­fallið mikið þegar börn vaxi upp úr aðstöðu

Katrín Atladóttir

Katrín segir jafn­framt að Ármann geti ekki haldið mót til fjár­öfl­unar eins og önnur félög í borg­inni vegna aðstöðu­leys­is. Skóla­í­þrótta­hús­unum sé lokað í sum­ar­byrjun líkt og skól­unum svo tíma­bilið hjá Ármannskrökkum sé styttra en hjá börnum í öðrum félög­um.

„Brott­fall er mikið þegar börnin vaxa upp úr þess­ari aðstöðu og þurfa þá að ferð­ast til æfinga utan hverf­is. Aðstöðu­leysi Þróttar er líka alvar­legt en blak­deild Þróttar æfir á tíu stöðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og erf­ið­lega hefur gengið að halda úti starfi í hand­bolta,“ skrifar hún.

Hún segir að íþrótta­hús sem nýt­ist Þrótti, Ármanni og skól­unum í hverf­inu hafi skorað einna hæst í for­gangs­röðun íþrótta­mann­virkja í Reykja­vík. „Vinnu­hópur allra hag­að­ila á að skila til­lögum að upp­bygg­ingu í Laug­ar­dal fyrir 1. des­em­ber. Það eru sjö mán­uðir eftir af kjör­tíma­bil­inu og lítið áþreif­an­legt hefur gerst í aðstöðu­vanda Laug­dæl­inga. Ung­menni í Laug­ar­dal þurfa alvöru aðstöðu, ekki fleiri vinnu­hópa eða góðar hug­myndir á blað­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent