Guðmundur Árni óskar eftir viðræðum um myndun nýs meirihluta með Framsókn

Samfylkingin bætti við sig um níu prósentustigum af fylgi í Hafnarfirði og er nú með jafn marga bæjarfulltrúa og Sjálfstæðisflokkur, sem tapaði einum. Framsókn er samt með öll tromp á hendi og getur valið með hvorum flokknum myndaður verður meirihluti.

Guðmundur Árni Stefánsson
Auglýsing

Guð­mundur Árni Stef­áns­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði, hefur haft sam­band við Valdi­mar Víð­is­son, odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í sveit­ar­fé­lag­inu, og óskað eftir við­ræðum um myndun nýs meiri­hluta flokk­anna tveggja þar.

Frá þessu greinir Guð­mundur Árni í stöðu­upp­færslu sem hann setti á Face­book í gær, en Sam­fylk­ingin jók fylgi sitt í Hafn­ar­firði veru­lega í kosn­ing­unum á laug­ar­dag, fékk 29 pró­sent atkvæða í stað 20,1 pró­sent árið 2018 og fjóra bæj­ar­full­trúa í stað þeirra tveggja sem flokk­ur­inn hafði áður. Fram­sókn bætti líka við sig fylgi og manni, fékk 13,7 pró­sent atkvæða í stað átta pró­senta árið 2018 og tvo menn í ell­efu manna bæj­ar­stjórn. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem myndar núver­andi meiri­hluta með Fram­sókn, tap­aði hins vegar þremur pró­sentu­stigum af fylgi og fékk 30,7 pró­sent atkvæða. Hann er enn stærsti flokk­ur­inn í Hafn­ar­firði en nú með jafn­marga full­trúa og Sam­fylk­ingin í stað þeirra fimm sem hann hafði áður. Rósa Guð­bjarts­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er núver­andi bæj­ar­stjóri í Hafn­ar­firð­i. 

Auglýsing
Fyrir liggur að Fram­sókn er í lyk­il­stöðu Í Hafn­ar­firði eins og víða ann­ars­stað­ar. Flokk­ur­inn er í þeirri gam­al­kunnu stöðu að geta valið að vinna til hægri með Sjálf­stæð­is­flokki eða á miðju eða til vinstri með öðr­um. Í flestum til­vikum er hrein­lega ekki mögu­leiki á stjórn­ar­mynstrum nema með aðkomu Fram­sókn­ar. Þannig er málum háttað í Hafn­ar­firði. Odd­viti Fram­sóknar sagði á kosn­inga­nótt of snemmt að segja til um það hvort núver­andi meiri­hluti flokks­ins með Sjálf­stæð­is­flokki myndi halda áfram.

Í stöðu­upp­færslu sinni í gær­kvöldi segir Guð­mundur Árni að fólkið hafi talað í kosn­ing­un­um. „Í Hafn­ar­firði stimpl­uðum við jafn­að­ar­menn okkur ræki­lega inn og fengum fjóra bæj­ar­full­trúa kjörna - tvö­föld­uðum tölu þeirra eins og mark­miðið var. [...] Ég hef haft sam­band við odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins og óskað eftir við­ræðum um myndun nýs meiri­hluta XS og XB í Hafn­ar­firði. En það eru flokk­arnir sem sigr­uðu og voru kall­aðir til verka, á meðan Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði umtals­verðu fylgi. Við sjáum hvað set­ur. Það væri gott fyrir Hafn­firð­inga að fá félags­hyggju­meiri­hluta í Fjörð­inn. Við jafn­að­ar­menn erum nú sem fyrr til­búnir í verk­in.“

Kæru vin­ir. ­Fólkið hefur tal­að. Kosn­inga­úr­slit liggja fyr­ir. Í Hafn­ar­firði stimpl­uðum við jafn­að­ar­menn okkur ræki­lega...

Posted by Guð­mundur Árni Stef­áns­son on Sunday, May 15, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent