Hádegisverður eigi ekki að varpa mikilli rýrð á störf Bankasýslunnar

Fjármála- og efnahagsráðherra segir að hádegisverðir, eins og starfsmenn Bankasýslunnar þáðu frá fjármálafyrirtækjum í tengslum við störf sín í aðdraganda sölu hluta Íslandsbanka, varpi ekki rýrð á störf hennar.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnhagsráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnhagsráðherra.
Auglýsing

Gjafir til opin­berra starfs­manna þurfa að vera innan skyn­sam­legra marka en snú­ast á end­anum um mats­at­riði að mati Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­maður Pírata, spurði Bjarna í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun hvort hann teldi það eðli­legt að starfs­menn Banka­sýsl­unnar þiggi gjafir í tengslum við störf sín?

Minn­is­blað um þær gjafir sem for­stjóri og starfs­menn Banka­sýslu rík­is­ins hafa þegið af fjár­mála­fyr­ir­tækjum var skilað til fjár­laga­nefndar Alþingis í byrjun októ­ber, næstum sex mán­uðum eftir að það var boð­að. Í því er útli­stað það sem hóp­ur­inn þáði að gjöf frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem mörg hver fengu svo arð­bær hlut­verk í ferl­inu við að selja Íslands­banka.

Auglýsing

Jón Gunnar Ólafs­son, for­stjóri Banka­sýsl­unn­ar, og Lárus Blön­dal, stjórn­ar­maður stofn­un­ar­inn­ar, sátu fyrir svörum á opnum fundi fjár­laga­nefndar 27. apr­íl. Boðað var til fund­ar­ins vegna mik­illar gagn­rýni á sölu á 22,5 pró­­­sent hlut íslenska rík­­­is­ins í Íslands­­­­­banka 22. mars síð­­­ast­lið­inn á 52,65 millj­­­arða króna. Alls 207 fjár­­­­­festar fengu þá að kaupa hluti á verði sem var sam­an­lagt 2,25 millj­­­örðum króna undir mark­aðsvirði bank­ans í lok­uðu útboði sem fór fram sam­­­kvæmt til­­­­­boðs­­­leið.

„Við fengum þarna ein­hverjar vín­­­flöskur og flug­­­elda og konfekt­­­kassa. Svo nátt­úru­­­leg eigum við ein­hverja hádeg­is­verði og kvöld­verði með ráð­­­gjöfum og svo fram­­­veg­­­is. En ekk­ert ann­að,“ sagði Jón Gunnar þegar Bjarkey Olsen Gunn­ars­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefnd­ar, spurði hann hvort hann hefði þegið boð, gjafir, risnu eða annað slíkt í kjöl­far eða í aðdrag­anda beggja ´tboða sem fram hafa farið með hluti rík­is­ins í Íslands­banka.

Nefnd­­­ar­­­menn fóru í kjöl­farið fram á frek­­­ari svör um málið og Jón Gunnar sagð­ist ætla að taka saman minn­is­­­blað um þessar gjafir og greiddu hádeg­is­verð­i. Minn­is­blaðið er dag­sett 7. októ­ber, nærri sex mán­uðum eftir fund nefnd­ar­inn­ar.

20 vinnufund­ir, yfir­leitt í hádeg­inu, þar sem veit­ingar voru í boði með ýmsum fjár­mála­fyr­ir­tækj­um, tveir kvöld­verð­ir, tæki­fær­is­gjafir, til að mynda vín­flöskur, konfekt­kass­ar, kok­teila­sett, „stöðluð jóla­gjöf“ og flug­eldur eru til­tekin í minn­is­blað­inu sem gjafir sem þáðar voru frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem mörg hver fengu svo arð­bær hlut­verk í ferl­inu við að selja Íslands­banka.

„Er það eðli­legt að starfs­menn banka­sýsl­unnar þiggi gjafir í tengslum við störf sín?“

„Þessar gjafir sem sam­tals hlaupa á hund­ruðum þús­unda króna komu frá umsjón­ar­að­il­um, fjár­mála­ráð­gjöf­um, lög­fræði­legum ráð­gjöf­um, sölu­ráð­gjöfum og sölu­að­ilum sem allir eiga það sam­eig­in­legt að hafa átt aðkomu að vinnu banka­sýsl­unnar við sölu á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka,“ sagði Þór­hildur Sunna.

Hún vís­aði í yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­flokk­anna frá því í apríl þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­ari hlutum Íslands­banka að sinni þar sem segir meðal ann­ars að traust og gagn­sæi verði að ríkja um sölu á eignum rík­is­ins. Þing­mað­ur­inn spurði svo fjár­mála- og efn­hags­ráð­herra: „Er það eðli­legt að starfs­menn banka­sýsl­unnar þiggi gjafir í tengslum við störf sín?“

„Stutta svarið við þessu er það að ef um slíkar gjafir er að ræða þurfa þær að vera innan hóf­legra marka og í ein­hverjum eðli­legum tengslum við störf­in,“ svar­aði Bjarni, sem sagð­ist ekki telja að hádeg­is­verður eigi ekki að varpa rýrð á störf Banka­sýsl­unnar að mati Bjarna. Starfs­menn Banka­sýsl­unnar þáðu einmitt 20 hádeg­is­verði, að því er fram kemur í minn­is­blað­inu.

Þá sagði hann það við­skipta­sam­band sem Þór­hildur Sunna væri að vísa í, Banka­sýslan og sölu­ráð­gjaf­ar, snú­ist í raun um við­skipta­mál og hafi ekk­ert með hina eig­in­legu sölu rík­is­eign­ar­innar að gera.

„Hérna er vænt­an­lega verið að gefa í skyn að þarna séu menn að kaupa sér ein­hverja vel­vild til þess að fá að taka þátt í sölu­með­ferð­inni og þiggja fyrir það ein­hverja þókn­un. Það er stjórn Banka­sýsl­unnar sem ber ábyrgð á heild­ar­eft­ir­liti með slíkri samn­inga­gerð og mögu­legum hags­muna­á­rekstrum sem kunna að skap­ast.“

„En stutta svarið við því hvort það sé heppi­legt eða æski­legt að um sé að ræða gjafir, þókn­anir að ein­hverju tagi, hvort sem það er að það er í formi hádeg­is­verðar eða öðrum hætti, þá er stutta svarið mitt að það ber að fara mjög var­lega í öllu slík­u,“ sagði Bjarni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent