Hafdís Helga Ólafsdóttir, sem samið hefur við íslenska ríkið um greiðslu miskabóta vegna brots Lilju Alfreðsdóttur fyrrverandi mennta- og menningarmálaráðherra á jafnréttislögum, segir að „sært stolt“ ráðherrans hafi reynst „dýru verði keypt fyrir skattgreiðendur“.
Þetta kemur fram í færslu Hafdísar Helgu á Facebook, þar sem hún tjáir sig um lyktir málsins, en eins og Kjarninn sagði frá fyrr í dag hefur mennta- og barnamálaráðuneytið, sem nú er undir stjórn Ásmundar Einars Daðasonar, ákveðið að falla frá áframhaldandi málarekstri gegn Hafdísi Helgu og semja við hana um greiðslu miskabóta.
Heimildir Kjarnans herma að upphæðin sem verði greidd sé 2,3 milljónir króna.
Lopinn teygður fram yfir kosningar
Í færslu sinni kallar Hafdís Helga málsókn ráðherrans fordæmalausa. „Ráðherra freistaði þess sem sagt að fá þeim úrskurði kærunefndarinnar hnekkt að hún hefði sjálf brotið jafnréttislög. Til þess þurfti hún að draga mig persónulega fyrir dóm sem þvældist nú ekki fyrir henni. Ekki tókst henni ætlunarverk sitt. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur 5. mars 2021 í máli E- 5061/2020 þar sem ekki var fallist á eina einustu málsástæðu ráðherrans og voru þær allnokkrar,“ segir Hafdís í færslu sinni.
Hafdís Helga bætir við að ráðherrann hafi þrátt fyrir það kosið að „áfrýja til Landsréttar fjórum klukkutímum síðar þrátt fyrir sterkan dóm“, sem sé fáheyrt og þannig á að „teygja lopann fram yfir kosningar.“
„Allir vita hvernig þær fóru en málið komst svo loks á dagskrá Landsréttar 28. febrúar 2022. Það hefur nú hins vegar verið afturkallað af hálfu ríkisins og eftir stendur afdráttarlaus héraðsdómur um brot ráðherrans Lilju Alfreðsdóttur á jafnréttislögum - sært stolt hennar hefur reynst dýru verði keypt fyrir skattgreiðendur,“ segir í færslu Hafdísar Helgu.
„Þetta má ekki endurtaka sig, hvorki á þessu sviði né öðrum“
Hún bætir við „þessu harðræði“ sé sem sagt lokið – og að hennar skilaboð séu einföld.
„Þetta má ekki endurtaka sig, hvorki á þessu sviði né öðrum. Að slík valdbeiting sé viðhöfð og þjösnast á einstaklingi fyrir engar sakir svo mánuðum og árum skiptir í skjóli ríkisins og á kostnað skattgreiðenda,“ segir Hafdís Helga, sem segist svo bíða spennt „eftir því hvað umboðsmaður Alþingis leggur til í málum þeirra einstaklinga sem verða fyrir því óláni - svo vísað sé til orða hans sjálfs í ágúst sl. á Lagadeginum - að kæra til stjórnvalda, vinna og þurfa svo að sæta því að þurfa að taka til varna.“
„Á þessu langa óvissutímabili, samhliða m.a. jarðskjálftum, eldgosi og Covid hefur rifið í bæði í mínu vinnulífi og fjölskyldulífi, já fyrir þær sakir einar að leita réttar míns eftir lögboðnum leiðum, í kjölfar þess að sækja um starf sem ég fékk sem betur fer ekki. Varð svo hluti af besta skets í áramótaskaupi fyrr og síðar með hestinum Blesa frá Hafurstöðum. Dæmi svo bara hver fyrir sig hvort það sé þess virði að leita réttar síns í jafnréttisparadísinni Íslandi…“ segir Hafdís Helga einnig, í færslu sinni um málið.