Hlutabréfamarkaðurinn stöðvaður vegna tæknilegra vandræða

Tæknilegir örðugleikar ollu því að Kauphöllin birti rangt dagslokaverð fyrir daginn í gær. Kauphöllin biðst velvirðingar á mistökunum og segist líta þetta mjög alvarlegum augum.

Kauphöllin ný
Auglýsing

Kaup­höllin birti rangt dagsloka­verð á hluta­bréfum skráðra fyr­ir­tækja eftir gær­dag­inn vegna tækni­legra örð­ug­leika. Enn eru dags­breyt­ing­arnar á vef Keld­unnar rang­ar, en þær miða við dagsloka­verð fyr­ir­tækj­anna á mið­viku­dag­inn.

Vand­ræði í dreif­ingu mark­aðs­gagna

Nas­daq Iceland greindi frá örð­ug­leik­unum í til­kyn­inngu til fjöl­miðla í morg­un, en þar kom fram rétt dagsloka­verð fyr­ir­tækj­anna í gær. Kristín Jóhanns­dótt­ir, sam­skipta­stjóri hjá Kaup­höll­inni, sagði í sam­tali við Kjarn­ann að vand­ræði hafi komið upp við dreif­ingu mark­aðs­gagna í gegnum upp­lýs­inga­veitu­kerfi sem íslenski mark­að­ur­inn styðst við, sem hafði áhrif á mark­að­inn og kaup­hall­ar­að­ila.

Fyrir vikið hafi mark­aðnum verið lokað á undan áætlun í gær og ákveðið var að fella niður öll við­skipti frá því vanda­málið kom upp, sem var kl. 14:48. Kristín segir þó að málið sé leyst og að mark­að­ur­inn hafi opnað með eðli­legum hætti í morg­un.

Auglýsing

Aðspurð hvort loka hafi þurft mark­aðnum áður vegna tækni­legra örð­ug­leika segir hún að það sé sem betur fer frekar sjald­gæft. Þó hafi slíkt ger­st, en það kom síð­ast fyrir í nóv­em­ber 2019. „Haf­andi sagt það, þá lítum við alltaf á svona atburð mjög alvar­legum augum og biðj­umst vel­firð­ingar á þessu,“ bætir hún við.

Græn Kaup­höll í stað rauðrar

Flest fyr­ir­tæki eru rauð á vef Keld­unn­ar, sem gefur til kynna að virði þeirra hafi lækkað í dag. Þessar tölur miða hins vegar við dagsloka­gengi fyr­ir­tækj­anna í á mið­viku­dag­inn, áður en mark­aðir hrundu í kjöl­far inn­rásar Rússa inn í Úkra­ínu. Ef miðað væri við rétta dagsloka­gengi gær­dags­ins væru öll fyr­ir­tæki græn þessa stund­ina, þar sem þau hækk­uðu öll í verði frá því í gær.

Verð­hækk­unin hefur verið mest hjá Brim, en hún nam rúm­lega ell­efu pró­sentum í dag, ef miðað er við rétt dagsloka­gengi. Virði bréfa í Icelandair hækk­aði einnig um sjö pró­sent í dag, en bréf fyr­ir­tæk­is­ins eru tæpum þremur pró­sentum ódýr­ari en þau voru við lokun mark­aða á mið­viku­dag­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent