Hafdís Helga: Sært stolt Lilju „dýru verði keypt fyrir skattgreiðendur“

Hafdís Helga Ólafsdóttir skrifstofustjóri segir að málshöfðun Lilju Alfreðsdóttur á hendur sér sé dæmi um valdbeitingu á kostnað skattgreiðenda sem aldrei megi endurtaka sig.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra.
Auglýsing

Haf­dís Helga Ólafs­dótt­ir, sem samið hefur við íslenska ríkið um greiðslu miska­bóta vegna brots Lilju Alfreðs­dóttur fyrr­ver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra á jafn­rétt­islög­um, segir að „sært stolt“ ráð­herr­ans hafi reynst „dýru verði keypt fyrir skatt­greið­end­ur“.

Þetta kemur fram í færslu Haf­dísar Helgu á Face­book, þar sem hún tjáir sig um lyktir máls­ins, en eins og Kjarn­inn sagði frá fyrr í dag hefur mennta- og barna­­mála­ráðu­­neyt­ið, sem nú er undir stjórn Ásmundar Ein­­ars Daða­­son­­ar, ákveðið að falla frá áfram­hald­andi mála­­rekstri gegn Haf­­dísi Helgu og semja við hana um greiðslu miska­­bóta.

Heim­ildir Kjarn­ans herma að upp­­hæðin sem verði greidd sé 2,3 millj­­ónir króna.

Lop­inn teygður fram yfir kosn­ingar

Í færslu sinni kallar Haf­dís Helga mál­sókn ráð­herr­ans for­dæma­lausa. „Ráð­herra freist­aði þess sem sagt að fá þeim úrskurði kæru­nefnd­ar­innar hnekkt að hún hefði sjálf brotið jafn­rétt­islög. Til þess þurfti hún að draga mig per­sónu­lega fyrir dóm sem þvæld­ist nú ekki fyrir henni. Ekki tókst henni ætl­un­ar­verk sitt. Dómur féll í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 5. mars 2021 í máli E- 5061/2020 þar sem ekki var fall­ist á eina ein­ustu máls­á­stæðu ráð­herr­ans og voru þær all­nokkrar,“ segir Haf­dís í færslu sinni.

Auglýsing

Haf­dís Helga bætir við að ráð­herr­ann hafi þrátt fyrir það kosið að „áfrýja til Lands­réttar fjórum klukku­tímum síðar þrátt fyrir sterkan dóm“, sem sé fáheyrt og þannig á að „teygja lopann fram yfir kosn­ing­ar.“

Hafdís Helga Ólafsdóttir er skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, en var áður skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu.

„Allir vita hvernig þær fóru en málið komst svo loks á dag­skrá Lands­réttar 28. febr­úar 2022. Það hefur nú hins vegar verið aft­ur­kallað af hálfu rík­is­ins og eftir stendur afdrátt­ar­laus hér­aðs­dómur um brot ráð­herr­ans Lilju Alfreðs­dóttur á jafn­rétt­islögum - sært stolt hennar hefur reynst dýru verði keypt fyrir skatt­greið­end­ur,“ segir í færslu Haf­dísar Helgu.

„Þetta má ekki end­ur­taka sig, hvorki á þessu sviði né öðrum“

Hún bætir við „þessu harð­ræði“ sé sem sagt lokið – og að hennar skila­boð séu ein­föld.

„Þetta má ekki end­ur­taka sig, hvorki á þessu sviði né öðr­um. Að slík vald­beit­ing sé við­höfð og þjösnast á ein­stak­lingi fyrir engar sakir svo mán­uðum og árum skiptir í skjóli rík­is­ins og á kostnað skatt­greið­enda,“ segir Haf­dís Helga, sem seg­ist svo bíða spennt „eftir því hvað umboðs­maður Alþingis leggur til í málum þeirra ein­stak­linga sem verða fyrir því óláni - svo vísað sé til orða hans sjálfs í ágúst sl. á Laga­deg­inum - að kæra til stjórn­valda, vinna og þurfa svo að sæta því að þurfa að taka til varna.“

Málið var tekið fyrir í grínatriði í Áramótaskaupinu 2021. Skjáskot úr Áramótaskaupinu.

„Á þessu langa óvissu­tíma­bili, sam­hliða m.a. jarð­skjálft­um, eld­gosi og Covid hefur rifið í bæði í mínu vinnu­lífi og fjöl­skyldu­lífi, já fyrir þær sakir einar að leita réttar míns eftir lög­boðnum leið­um, í kjöl­far þess að sækja um starf sem ég fékk sem betur fer ekki. Varð svo hluti af besta skets í ára­mótaskaupi fyrr og síðar með hest­inum Blesa frá Haf­ur­stöð­um. Dæmi svo bara hver fyrir sig hvort það sé þess virði að leita réttar síns í jafn­réttisparadís­inni Ísland­i…“ segir Haf­dís Helga einnig, í færslu sinni um mál­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent