Hagfræðidoktor og Ingólfur Arnarson útskýra hagfræði

Sigríður-Benediktsdóttir.jpg
Auglýsing

„Bóka­skil­grein­ingin er sú að hag­fræði er félags­vís­indi sem fjalla um hvernig ein­stak­ling­ar, fyr­ir­tæki og þjóðir skipta með sér gæðum sem eru af skornum skammti. En meira skýr­andi væri að segja að hag­fræði er grein sem notar vís­inda­legar aðferðir til þess að sjá hvernig ákvarð­anir eru tekn­ar,“ sagði Sig­ríður Bene­dikts­dóttir í síð­asta þætti af Ferð til fjár, þegar hún var beðin um að útskýra hag­fræði. Sig­ríður er doktor í hag­fræði frá Yale-há­skóla í Banda­ríkj­unum og var þar kenn­ari áður en hún tók við starfi fram­kvæmda­stjóra stöð­ug­leika­sviðs hjá Seðla­banka Íslands.

Þeir Breki Karls­son og Helgi Selj­an, umsjón­ar­menn þátt­ar­ins, leit­uðu til Ing­ólfs Arn­ar­sonar og konu hans Hall­veigar Fróða­dóttur til þess að skýra hag­fræð­inga enn frek­ar.

Ingólfur Arnarson og Hallveig Fróðadóttir standa frammi fyrir mikilvægri spurningu: Hversu miklum tíma eiga þau að eyða í berjatínslu? Ingólfur Arn­ar­son og Hall­veig Fróða­dóttir standa frammi fyrir mik­il­vægri spurn­ingu: Hversu miklum tíma eiga þau að eyða í berja­tínslu?

Auglýsing

Ingólfur og Hall­veig eru ósam­mála um hversu miklum tíma þau eiga að eyða dag­lega í að tína ber, upp­á­halds fæðu sína og lífs­við­ur­væri. Til þess að eiga nóg af berjum þurfa þau að tína ber í fjórar klukku­stundir á dag, en Ingólfur vill bæta klukku­stund við vinnu­dag­inn. Fram til þessa hafa þau tínt 1.000 ber á fjórum klukku­stundum hvern dag. Það er nokkuð skyn­sam­legt af Ingólfi að fjölga vinnu­stund­um, hjónin gætu þá átt birgðir af berjum ef eitt­hvað kemur upp á eða tekið sér frí á sunnu­dög­um.

En hjónin elska að prjóna og að lengja vinnu­dag­inn myndi að sjálf­sögðu koma niður á prjóna­iðj­unni. Hall­veig er hreint ekki viss hvort það sé þessi virði.

Ingólfur skýrir fyrir eiginkonu sinni hvers vegna þau ættu að tína ber klukkustund lengur á hverjum degi. Ingólfur skýrir fyrir eig­in­konu sinni hvers vegna þau ættu að tína ber klukku­stund lengur á hverjum deg­i.

Ingólfur teiknar upp ein­falt graf fyrir konu sína. Lárétti ásinn sýnir tíma og lóð­rétti ásinn sýnir þann fjölda berja sem hjónin geta tínt. Því fleiri klukku­stundum sem þau eyða í berja­tínslu, því meira tína þau. En Ingólfur skýrir að eftir fimm klukku­stunda tínslu þá hægi veru­lega á hversu miklu þau afkasta. Því sé best að hætta þá og prjóna í stað­inn.

Ingólfur hefur þarna kom­ist að því að afköst og vinnu­stundir hald­ast ekki endi­lega í hend­ur. Sá sem vinnur lengst, hann afkastar ekki endi­lega mest. Að fimm klukku­stundum liðnum er tími til kom­inn að enda vinnu­dag­inn, þegar dregur veru­lega úr afköst­um.

Með ein­földum hætti má segja að „prjóna­tím­inn“ eftir fjög­urra klukku­stunda tínslu kosti hjónin 250 ber. Það er að segja, ef þau væru ekki að prjóna, þá gætu þau tínt 250 ber til við­bótar við þau 1000 sem þau tíndu á fyrstu fjórum klukku­stund­un­um. En ef þau prjóna að lok­inni fimm klukku­stunda tínslu þá kostar sá prjóna­tími minna í berjum talið, þar sem þau hefðu hvort sem er tínt mun færri ber vegna þreytu.

Þau Sig­ríður og Ingólfur skýrðu með þessum hætti grunn­hug­mynd hag­fræð­inn­ar. Fyrir áhuga­sama er þetta svar Gylfa Magn­ús­son­ar, dós­ent við Háskóla Íslands á Vís­inda­vefnum hnit­miðað og fróð­legt, auk þess sem bókin Hag­fræði í hnot­skurn skýrir fræði­grein­ina með grein­ar­góðum hætti.

Kjarn­inn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vik­ur. Mark­mið­ið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönn­um! Fyrsti þátt­ur­inn var á dag­skrá fimmtu­dag­inn 15. jan­ú­ar. Fylgstu með á Face­book-­síðu Ferð til fjár.

ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None