Hanna Birna gagnrýndi seinagang og fundaði með lögreglustjóra

Hanna.Birna_.4.jpg
Auglýsing

Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, inn­an­rík­is­ráð­herra, gagn­rýnir seina­gang við rann­sókn á leka­mál­inu svo­kall­aða í bréfi til Tryggva Gunn­ars­son­ar, Umboðs­manns Alþing­is. Bréfið hefur verið birt á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins en Tryggvi sendi fyr­ir­spurn á ráð­herra eftir að hafa rætt um málið við Stefán Eiríks­son og Sig­ríði Frið­jóns­dóttur rík­is­sak­sókn­ara.

Hanna Birna ­seg­ist ekki hafa hafta óeðli­leg afskipti af rann­sókn máls­ins en emb­ætti rík­is­sa­sókn­ara hefur það nú til með­ferðar og hefur ákvörðun um hvort ákært verði í mál­inu, sem varðar mein­tan leka á per­sónu­upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos, ekki verið tek­in.

Auglýsing

Í bréfi sínu segir Hanna Birna að langur rann­sókn­ar­tími hafa verið baga­legur fyrir sig. „Þegar rann­sókn máls­ins hófst gaf ég út þá yfir­lýs­ingu að ég myndi ekki tjá mig um málið fyrr en henni væri lok­ið, enda ekki við hæfi að ráð­herra lög­reglu­mála tjáði sig opin­ber­lega um rann­sókn á meðan hún stæði yfir. Meðal ann­ars af þess­ari ástæðu hefur sá langi tími sem rann­sóknin hefur tekið verið baga­legur og t.a.m. tak­markað mögu­leika mína til að svara ítrek­uðum árásum sem ég hef orðið fyrir á opin­berum vett­vang­i.“

Hanna Birna seg­ist hafa átt fjóra fundi með Stef­áni Eiríks­syni og að leka­málið hafi meðal ann­ars borið á góma á þeim fund­um. „Um fyrra atriðið er það að segja að ég hef átt fjóra almenna fundi með lög­reglu­stjóra á tíma­bil­inu frá því fram­an­greind rann­sókn hófst í febr­úar sl., en eng­inn þeirra var boð­aður til að ræða rann­sókn­ina sér­stak­lega. Á þeim mán­uðum sem þessi lög­reglu­rann­sókn hefur staðið yfir hef ég jafn­framt átt sím­töl við lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna ýmissa mála. Ráð­herra á eðli máls­ins sam­kvæmt reglu­lega sam­skipti við for­stöðu­menn und­ir­stofn­ana ráðu­neyt­is­ins, oft og tíðum á óform­legum nót­um, og er því eins farið með lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ekki er haldin skrá yfir þau sam­skipti og því er mér ekki unnt að leggja fram gögn til að upp­lýsa um til­vik þeirra [...] Í þeim til­vikum sem rann­sókn­ina hefur borið á góma í sam­skiptum mínum við lög­reglu­stjór­ann hefur það snúið að þeirri við­leitni ráðu­neyt­is­ins að greiða fyrir rann­sókn máls­ins. Er hér fyrst og fremst um að ræða atriði sem snerta upp­lýs­inga­öflun lög­regl­unnar frá ráðu­neyt­inu til að hægt sé að ljúka rann­sókn­inni eins fljótt og unnt er. Sér­stak­lega hef ég spurt um öryggi þeirra gagna sem lög­reglan hefur fengið aðgang að hér innan ráðu­neyt­is­ins og varða umrædda rann­sókn ekki með nokkrum hætti. Þá hef ég spurt lög­reglu­stjóra hvenær vænta mætti þess að rann­sókn­inni lyk­i.“



Sjá má bréf Hönnu Birnu til Umboðs­manns Alþingis hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None