Heiðar Guðjónsson selur hlut sinn í Sýn og kveður sem forstjóri

Heiðar átti alls 12,72 prósenta hlut í fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækinu Sýn fyrir viðskiptin. Þann hlut hefur hann selt fyrir 2,2 milljarða.

Heiðar Guðjónsson tók við sem forstjóri Sýnar árið 2019 en hann hafði þá verið stjórnarformaður félagsins frá árinu 2014.
Heiðar Guðjónsson tók við sem forstjóri Sýnar árið 2019 en hann hafði þá verið stjórnarformaður félagsins frá árinu 2014.
Auglýsing

Heiðar Guð­jóns­son fjár­festir og for­stjóri Sýnar hefur selt öll hluta­bréf sín í fyr­ir­tæk­inu og mun láta af störfum sem for­stjóri fyrir lok þessa mán­að­ar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Sýnar til kaup­hall­ar.

Fyrir söl­una átti Heiðar 12,72 pró­senta eign­ar­hlut í fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu, eða alls rúm­lega 34,1 milljón hluti, í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Ursus ehf. Verð fyrir hvert bréf í við­skipt­unum nemur 64 krónum og heild­ar­virði við­skipt­anna því tæp­lega 2,2 millj­arðar króna. Verð á hvern hlut er 9,4 pró­sentum hærra en dagsloka­gengi bréfa félags­ins á föstu­dag er það var 58,5 krónur á hlut.

Heiðar hefur um langt ára­bil verið einn af stærstu hlut­höfum Sýn­ar. Fram að söl­unni hafði Heiðar aukið við hlut sinn í mán­uð­in­um. Listi yfir stærstu hlut­hafa félags­ins var upp­færður þann 1. júlí síð­ast­lið­inn. Þá átti Heiðar rúm­lega 27.1 milljón hluti í gegnum Ursus ehf, alls 10,12 pró­sent í félag­inu.

Auglýsing

Heiðar hefur gegnt stöðu for­stjóra Sýnar frá því í apríl 2019 en hann var áður stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins á árunum 2014 til 2019. Fram kemur á vef mbl.is að Heiðar hafi sent sam­starfs­fólki sínu til­kynn­ingu í morgun þar sem hann greindi frá því að hann hafi orðið fyrir heilsu­bresti fyrr á árinu og í kjöl­farið ráð­lagt að minnka við sig vinnu.

Gavia Invest orð­inn stærsti hlut­haf­inn

Gavia Invest er nú orð­inn stærsti hlut­hafi félags­ins eftir við­skipti helg­ar­innar með hátt í 15 pró­senta hlut. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til kaup­hall­ar. Í til­kynn­ing­unni kemur fram að Gavia Invest sé í eigu þriggja félaga, Capi­tal ehf, E&S 101 ehf og AB 891 ehf. Eig­endur þess­ara félaga eru Reynir Grét­ars­son, Hákon Stef­áns­son, Jon­athan R. Rubini, Andri Gunn­ars­son, Mark Kroloff og Jón Skafta­son. Jón er enn fremur fyr­ir­svars­maður félags­ins Gavia Invest.

Sýn er stór aðili á fjöl­miðla­mark­aði. Fyr­ir­tækið á og rekur sjón­varps­stöðv­arnar Stöð 2 og Stöð 2 Sport, vef­mið­il­inn Vísi og útvarps­stöðv­arnar Byglj­una, FM957 og X977. Innan veggja fyr­ir­tæk­is­ins er rekin stór frétta­stofa, sam­eig­in­leg frétta­stofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unn­ar. Þá á Sýn einnig fjar­skipta­fyr­ir­tækið Voda­fo­ne.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent