Hjúkrunarfræðingar höfnuðu nýgerðum kjarasamningi félagsins með miklum mun, en atkvæðagreiðslunni lauk á hádegi. Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga lítur svo á að samningar félagsins við ríkið séu nú lausir og félagið mun fela lögmanni sínum að meta réttarstöðu félagsins gagnvart ríkinu.
Samningurinn var felldur með 1677 atkvæðum á móti 219, eða 88,4 prósentum gegn 11,6 prósentum. Kjörsókn var 84,8 prósent.
„Í kjölfar lagasetningar Alþingis, sem batt enda verkfallsaðgerðir hjúkrunarfræðinga, var það sameiginleg ákvörðun samninganefndar Fíh, trúnaðarmannaráðs og framkvæmdaráðs stjórnar félagsins að rétt væri að gefa hjúkrunarfræðingum tækifæri til að kjósa um tilboð ríkisins sem þá lá fyrir. Enda taldi samninganefnd Fíh að gerðardómi, sem Alþingi fól að ákvarða laun hjúkrunarfræðina, væru settar afar þröngar skorður,“ segir í tilkynningu frá hjúkrunarfræðingum.
„Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar undirstrikar stuðning hjúkrunarfræðinga við áherslur samninganefndar félagsins um að stjórnvöld verði að bregðast við sanngjörnum kröfum þeirra um að grunnlaun hjúkrunarfræðinga verði sambærileg við aðrar háskólamenntaðar stéttir og markvisst verði dregið úr kynbundnum launamun. Fréttir af uppsögnum hjúkrunarfræðinga á síðustu vikum endurspegla afstöðu þeirra til tilboðs ríkisins en ómögulegt er að reka öflugt og öruggt heilbrigðiskerfi án þátttöku vel menntaðra hjúkrunarfræðinga.“