Hrollvekjurnar fá að vera í kjallaranum

Þótt bækur séu verk höfundar þá kemur margt fólk að útgáfu hverrar bókar. Sverrir Norland spjallar við ritstjóra, útgefendur, markaðsfólk, rithöfunda og fleiri sem koma að útgáfu bóka í hlaðvarpinu Bókahúsið.

Sverrir Norland stýrir nýju hlaðvarpi Forlagsins sem fjallar um bækur frá ýmsum hliðum.
Sverrir Norland stýrir nýju hlaðvarpi Forlagsins sem fjallar um bækur frá ýmsum hliðum.
Auglýsing

Bækur frá öllum hliðum eru í for­grunni í Bóka­hús­inu, nýju hlað­varpi For­lags­ins sem Sverrir Nor­land rit­höf­undur stýr­ir. Sverrir leggur áherslu á að skoða bækur frá sjón­ar­hóli fleiri en aðeins höf­und­anna sem skrifa þær:

„Þetta er óvenju­legt og frum­legt hlað­varp í þeim skiln­ingi að það er fjallað um bækur á öllum stig­um,“ segir Sverr­ir. „Ég ræði við rit­stjóra bóka, bóka­hönn­uði, bók­sala, mark­aðs­fólk, fólk á lag­er, þá sem búa til hljóð­bækur og svo fram­veg­is. Ég fjalla því í raun um alla fram­kvæmd­ina að baki því að búa til bæk­ur. Í dag er bók svo ekki bara prentuð bók heldur líka raf­bók og hljóð­bók svo að við pælum líka í því. En rit­höf­und­arnir eru þó alltaf í for­grunni – enda ara­grúi af skemmti­legum bókum að koma út þessa dag­ana.“

Nafn­giftin Bóka­húsið er ekki gripin úr lausu lofti en hlust­endur ferð­ast ásamt Sverri og gestum um óend­an­lega stórt og ævin­týra­legt hús í þátt­un­um: „Já, hlust­endur eru leiddir í gegnum hvern þátt á leik­glaðan og skemmti­legan hátt,“ segir Sverrir „Fyrst stíga þeir inn í and­dyrið og fá kynn­ingu á efni þátt­ar­ins, næst tylla þeir sér inn í betri stof­una og hlusta á við­tal við skáld­sagna­höf­und, fara þaðan inn í blóð­ugu borð­stof­una þar sem þeir stíga yfir lík með hníf í bak­inu og fyll­ast svolitlum óhugn­aði; á eftir er kær­komið að fá sér ferskt loft úti á svölum og skyggn­ast kannski út í heim til að fræð­ast um nýjar þýð­ingar – og svo fram­veg­is. Uppi á háa­lofti og í kjall­ar­anum leyn­ast svo köngu­ló­ar­vef­ir, gömul leynd­ar­mál, kannski lík… svo að það er frjór staður til að taka höf­unda hroll­vekja í við­tal.“

Auglýsing

Bókahúsið fær til sín ýmsa gesti.

Komnir eru út fjórir þættir og fær Sverrir til sín góða gesti í hverjum þætti. Þeirra á meðal eru Hall­dór Guð­munds­son, Fríða Ísberg, Ingólfur Eiríks­son, Sig­þrúður Gunn­ars­dóttir rit­stjóri, Emilía Erla Ragn­ars­dóttir bóka­hönn­uð­ur, Einar Kára­son, Rán Flygenring teikn­ari, Gunnar Helga­son, Sig­rún Páls­dótt­ir, Haukur Ingv­ars­son, Lilja Sig­urð­ar­dóttir og Jón­ína Leós­dótt­ir. Einnig er mikið lagt upp úr hljóð­heimi hlað­varps­ins. Frum­samin tón­list ómar í eyrum hlust­enda en það er tvíeykið Urm­ull og kraðak sem á heið­ur­inn af henni.

Að sögn Sverris er áhersla lögð á að hafa and­rúms­loftið í Bóka­hús­inu afslappað og skemmti­legt.

„Gott bóka­hlað­varp fjallar í raun um mann­lífið á jörð­inni eins og það leggur sig því að í bókum er fjallað um allt. Ég er gest­gjaf­inn í Bóka­hús­inu býð við­mæl­endur og hlust­endur vel­komna til mín og svo ræðum við um allt milli him­ins og jarð­ar. Ef okkur finnst gaman að gera hlað­varpið finnst áhorf­endum skemmti­legt að hlusta á það – eða það vona ég.“

Bóka­húsið er hægt að nálg­ast á vef For­lags­ins og á helstu hlað­varpsveit­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent