Hvíta húsið lét hræsnara heyra það á Twitter

Viðbrögð Hvíta hússins við gagnrýni þingmanna Repúblikanaflokksins á afskrifun námslána hafa vakið verðskuldaða athygli.

Fjölmargir hafa fagnað aðgerðum Biden í þessum efnum.
Fjölmargir hafa fagnað aðgerðum Biden í þessum efnum.
Auglýsing

Rík­is­stjórn Joes Biden Banda­ríkja­for­seta til­kynnti á dög­unum áform sín um að afskrifa hluta náms­lána meiri­hluta Banda­ríkja­manna, en um er að ræða efn­ingu á einu helsta kosn­inga­lof­orði for­set­ans. Um er að ræða end­ur­skipu­lagn­ingu á lána­greiðsl­unum almennt sem á að gagn­ast þeim sem eiga erf­ið­ast með að greiða náms­lán sín og felst stærsta aðgerðin í því að afskrifa 10 þús­und Banda­ríkja­dali af náms­lánum allra sem þéna minna en 125 þús­und dali á ári. Til að setja upp­hæð­ina í sam­hengi hljóðar með­al­náms­lán fólks sem lokið hefur námi í Banda­ríkj­unum upp á 25 þús­und dali.

Fjöl­margir hafa fagnað aðgerðum Biden í þessum efnum þó mörgu sam­flokks­fólki hans þyki betur mega ef duga skal. Til­kynnt var um aðgerð­irnar nú um þremur mán­uðum áður en þing­kosn­ingar fara fram í Banda­ríkj­unum og þykja þær lík­legar til þess að auka við stuðn­ing Demókra­ta­flokks­ins. Þing­menn Repúblikana­flokks­ins hafa reynt að klóra í bakk­ann með því að gagn­rýna aðgerð­irn­ar, og nota þá meðal ann­ars þá rök­semda­færslu að ósann­gjarnt sé að skatt­pen­ingar verka­fólks séu not­aðir til þess að greiða upp skuldir mennt­aðra.

Auglýsing

Hið minnsta sex þing­menn úr röðum Repúblikana­flokks­ins hafa verið háværir í gagn­rýni sinni á sam­fé­lags­miðlum og í sjón­varpi, en Hvíta húsið hefur vakið mikla athygli fyrir að benda á ákveðna hræsni í gagn­rýni þing­mann­anna á Twitt­er-að­gangi sín­um. Um er að ræða þing­menn­ina Marjorie Taylor Greene, Vern Buchan­an, Mike Kelly, Kevin Hern, Matt Gaetz og Markwa­yne Mull­in, en það sem þau eiga sam­eig­in­legt er að hafa fengið afskrifað hund­ruð þús­unda doll­ara, nú eða millj­ón­ir, af lánum sem þau fengu frá banda­ríska rík­inu í kór­ónu­veiru­far­aldr­in­um.

Um var að ræða svokölluð PPP (Pa­ycheck Prot­ect­ion Program) lán sem komið var á fót í valda­tíð Don­alds Trump og áttu að hjálpa ákveðnum fyr­ir­tækjum og sjálf­stætt starf­andi ein­stak­lingum að halda í við launa­kostnað og var ætlað að koma í veg fyrir atvinnu­leysi. Þeim sem sögðu ekki upp starfs­fólki og lækk­uðu ekki laun þess bauðst svo að fá lánin afskrifuð að hluta til eða öllu leyti. Úrræðið hefur hlotið mikla gagn­rýni og er ekki talað hafa skilað til­ætl­uðum árangri, auk þess sem spurn­ing­ar­merki hefur verið sett við það hvers vegna stjórn­mála­menn gátu tekið út slíkt lán.

PPP verk­efnið kost­aði 953 millj­arða Banda­ríkja­dala, en til sam­an­burðar hefur Hvíta húsið til­kynnt að áætl­anir um að afskrifa náms­lán muni kosta 24 millj­arða á ári. Fjöl­margir hafa fagnað því hvernig Hvíta húsið brást við gagn­rýni þing­mann­anna og telja ljóst að Biden hafi ráðið til sín ungt og rétt­sýnt fólk til að sinna sam­fé­lags­miðlum sín­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent