Siðlaust að krefja alla um sömu hófsemd

Formaður Eflingar segir það eins ósvífið og hægt er að hugsa sér að krefja láglauna- og verkafólk að sýna stillingu í komandi kjarabaráttu eftir allt sem það gekk í gegnum í kórónuveirufaraldrinum.

Sólveig Anna segir konur í ummönunarstörfum hafa staðið erfiðustu vaktirnar í faraldrinum.
Sólveig Anna segir konur í ummönunarstörfum hafa staðið erfiðustu vaktirnar í faraldrinum.
Auglýsing

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, segir að yfir­lýs­ingar stjórn­valda og atvinnu­rek­enda um að lítið sem ekk­ert svig­rúm sé til launa­hækk­ana og við­var­ana gegn því að „bog­inn verði spenntur of hátt“ séu eins ósvífnar og hægt sé að hugsa sér í ljósi þess sem gekk á í kór­ónu­veiru­far­aldr­in­um. Þar hafi margt verka- og lág­launa­fólk misst vinn­una og þurft að kom­ast af á atvinnu­leys­is­bótum og sé því með skulda­hala á eftir sér, þar sem allir viti að ekki sé hægt að reka heim­ili og fjöl­skyldu á atvinnu­leys­is­bót­um.

Auglýsing
Þá hafi það mest­megnis verið konur sem hafi staðið erf­ið­ustu vakt­irn­ar, konur í ummönn­un­ar­störfum sem ekki hafi getað unnið heiman frá sér, sem hafi mætt í vinn­una, tekið á móti börn­unum og sinnt hinum öldr­uðu og lagt heilsu sína í hættu án þess að fá eina krónu í álags­greiðslur þrátt fyrir að um hafi verið að ræða vakt sem sam­fé­lagið sam­ein­að­ist um að þyrfti að standa. Á sama tíma og þessar mann­eskjur hafi tekið á sig alla þessa ábyrgð og allar þessar byrðar hafi stöndug milli­stétt og auð­vitað yfir­stéttin farið inn í ástand sem leitt hafi af sér þá nið­ur­stöðu að þau hafi aldrei haft það betra.

„Að nú stígi fram for­sæt­is­ráð­herra ogaðrir og segja að öll þurfi að sýna hóf­semd, eftir að þau sem aldrei hafa sýnt hóf­semd hafa enn minna sýnt hana núna en áður, og að þau sem hafa farið í gegnum mjög trámat­íska upp­lifun í þessum far­aldri eigi líka að axla þessa byrði, þessa ábyrgð, mér finnst þetta bara sið­laust og til marks um fyrr­ingu og tengsla­leysi,“ sagði Sól­veig Anna í við­tals­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morg­un.

Sagð­ist Sól­veig Anna jafn­framt óboð­legt að segja við verka- og lág­launa­fólk, sem ofan á allt hafi horft upp á brostin lof­orð um þak á leigu­verð, að það eigi að vera hóf­stillt og „trúa á þennan útópíska stöð­ug­leika“ sem hljóti að koma ein­hvern tím­ann, svo lengi sem það fari aftur aft­ast í röð­ina. „Að segja þetta við full­orðið fólk að það sé ekki mik­il­vægt og ómissandi þó það sé það, að það eigi bara að fara aftur út í horn. Mér finnst það sið­laust og ég gæti notað harð­ari orð en það.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent