Afkoma Íbúðalánasjóðs var neikvæð um 808 milljónir króna á fyrri helmingi ársins, samanborið við 1.308 milljóna tap árið á undan. Þrátt fyrir tapið, var niðurstaðan betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, að því er segir í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði.
Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir fyrri hluta ársins 2015 var staðfestur af stjórn sjóðsins í dag. Samstæðureikningur Íbúðalánasjóðs hefur að geyma reikninga Íbúðalánasjóðs og dótturfélags hans, Leigufélagsins Kletts ehf.
Eiginfjárhlutfall sjóðsins hefur hækkað í 4,8 prósent en var 4,5 prósent í upphafi árs, að því er segir í tilkynningu. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir fimm prósent. Eigið fé Íbúðalánasjóðs í lok tímabilsins er 17.279 milljónir króna en var 18.087 milljónir króna í árslok 2014.
Enn fremur segir að vaxtatekjur hafi numið samtals rúmlega þrjátíu milljörðum krónum samanborið við vaxtatekjur upp á 27,5 milljarða á sama tíma í fyrra. Rekstrarkostnaður var 958 milljónir króna og lækkaði um fimmtán prósent eða 170 milljónir króna samanborið við sama tímabil árið 2014. Stöðugildum fækkaði um níu prósent á fyrri hluta ársins 2015 og voru 100 samanborið við 109 á sama tímabili árið 2014.
Önnur atriði úr tilkynningu, vegna afkomu Íbúðalánasjóðs á fyrri helmingi ársins, má sjá hér að neðan.
Virðisrýrnun útlána nam 19.590 milljónum króna í lok júní 2015 og lækkaði um 1.538 milljónir króna frá áramótum. Lækkun virðisrýrnunar tengist umtalsverðri minnkun vanskila heimila og sterkari tryggingastöðu lánasafnsins vegna hækkana á fasteignamarkaði. Í lok tímabilsins voru 95,7% heimila sem eru í viðskiptum við Íbúðalánasjóð með lán sín í skilum.
Útlán
Þann 30. júní 2015 voru útlán sjóðsins 691 milljarður króna og höfðu útlán lækkað um 36 milljarða króna frá áramótum. Þar af eru um 28 milljarðar vegna úrræða stjórnvalda. Lántaka sjóðsins nam 801 milljarði króna og lækkaði um 5,5 milljarða á tímabilinu. Heildareignir sjóðsins námu 818 milljörðum króna.
Vanskil heimila hafa minnkað verulega á milli tímabila. Um 4,3% heimila voru með þrjá eða fleiri gjalddaga í vanskilum þann 30. júní 2015 samanborið við 5,5% heimila í lok árs 2014.
Tryggingarstaða lánasafns
Um 94% af bókfærðu virði lánasafns Íbúðalánasjóðs liggur á veðbili innan við 90% af fasteignamati undirliggjandi veðandlags um mitt ár 2015. Fasteignaverð hefur hækkað umfram verðlag á tímabilinu og vanskil minnkað umtalsvert og því hefur tryggingarstaða lánasafnsins styrkst. Yfirgnæfandi hluti lána sjóðsins er á fyrsta veðrétti auk þess sem fasteignamat er að öllu jöfnu varkár verðmatsaðferð fyrir markaðsvirði eignar.
Úrræði til handa lántakendum
Á tímabilinu afgreiddi sjóðurinn höfuðstólslækkun fasteignalána til handa 24.727 heimilum alls að kröfuvirði 34.178 milljónir króna. Útlán sjóðsins drógust umtalsvert saman og laust fé jókst samsvarandi. Stjórnvöld hyggjast ljúka greiðslu kaupverðs leiðréttingarhluta lánasafnsins í janúar 2016 skv. samningi þar um.
Um 10.612 heimili hafa nýtt sér þann möguleika að greiða lán sín hjá sjóðnum hraðar upp með ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á fasteignalán sín. Umframgreiðslur vegna ráðstöfunar séreignarsparnaðar viðskiptavina hafa numið 2.887 milljónum króna fram til 30. júní 2015.
Fullnustueignir
Á tímabilinu seldi sjóðurinn 548 íbúðir og leysti til sín 181 íbúð til fullnustu. Þann 30. júní voru 1.524 fullnustueignir í eigu sjóðsins og hafði þeim fækkað um 367 eignir frá áramótum. Um 46% eigna til sölu eru í útleigu. Bókfært virði fullnustueigna sjóðsins tekur mið af kostnaðar-verði eða áætluðu gangvirði hvoru sem lægra reynist. Bókfært virði eigna móðurfélagsins þann 30. júní er 22 milljarðar króna, á sama tíma og fasteignamat sömu eigna er 26,6 milljarðar.