Ingvar Smári leysir Teit Björn af hólmi hjá Jóni

Lögfræðingurinn Ingvar Smári Birgisson hefur verið ráðinn nýr aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, í kjölfar þess að Teitur Björn Einarsson var ráðinn yfir í stöðu aðstoðarmanns ríkisstjórnarinnar.

Ingvar Smári Birgisson er nýr aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar.
Ingvar Smári Birgisson er nýr aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar.
Auglýsing

Ingvar Smári Birg­is­son hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra, en frá þessu var sagt í til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu í dag. Áður hafði verið greint frá því að Teitur Björn Ein­ars­son sem hafði verið Jóni til aðstoðar frá því í febr­úar hefði verið ráð­inn aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Síð­ast starf­aði Ingvar sem lög­fræð­ingur hjá Íslensku lög­fræði­stof­unni, en hann lauk meist­ara­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands árið 2019 og fékk mál­flutn­ings­rétt­indi fyrir hér­aðs­dómi árið 2019.

Áður var Ingvar blaða­maður á Morg­un­blað­inu á árunum 2014-2016 og full­trúi hjá Nor­dik lög­fræði­þjón­ustu árin 2016-2019.

Fyrr á þessu ári tók Ingvar sæti í stjórn Rík­is­út­varps­ins.

Fyrr­ver­andi for­maður SUS

Ingvar hefur tekið þátt í starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins árum sam­an. Hann var for­maður Heimdall­ar, félags ungra sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík árin 2013-2015 og for­maður Sam­bands ungra sjálf­stæð­is­manna frá 2017-2019.

Auglýsing

Í for­mann­s­tíð sinni hjá SUS vakti hann nokkra athygli fyrir að setja fram lög­banns­kröfu á vef­inn Tekj­ur.is, sem birti upp­lýs­ingar um tekjur allra skatt­greið­enda á árinu 2017. Lög­banns­beiðn­inni var hafn­að.

Ingvar mun starfa við hlið Brynjars Níels­sonar sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar og verður hann sá þriðji sem kemur til aðstoðar Jóni frá því að hann tók við dóms­mála­ráðu­neyt­inu undir lok síð­asta árs.

Hreinn Lofts­son sagði sig frá starf­inu skömmu eftir að hann tók við því og svo tók Teitur Björn við í febr­ú­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent